24.03.1923
Neðri deild: 28. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (171)
13. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Magnús Kristjánsson:
Jeg tók það skýrt fram áðan, að jeg sæi engin vandkvæði á því, að þessar lagabreytingar, sem hjer er um að ræða, geti komið til framkvæmda, ef þær verða samþyktar, nú þegar. Háttv. þm. eru að gera sjer óþarfa Grýlur, þegar þeir eru að fárast út af því, hve mikill verði tekjumissirinn, sem þessu fylgir. Eftir reynslu síðasta árs er ekki hægt að áætla tekju- og eignarskatt eftir stjórnarfrv. minna en 1 miljón kr. Nú get jeg ekki sjeð, að útsvarsfrádrátturinn, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, nemi meiri lækkun en um 100 þús. krónum. Ætti tekju- og eignaskatturinn, þótt þetta frv. sje samþykt, því aldrei að fara niður úr 900 þúsundum.
Hjer við bætst svo, að tvö önnur frv. eru nú á ferðinni, sem fara má með eins og við á, eftir því sem fer um þetta frv. Það er útflutningsgjaldið og breytingin á vörutollinum. Jeg held því, að menn geti með góðri samvisku samþykt þetta frv. þess vegna. Það ætti að vera öllum háttv. þm. ljóst, hvert hneyksli það væri, ef þetta mál væri nú að engu gert, eftir allar þessar umræður og allan þann tíma, sem til þess hefir verið varið. Þau eru nógu mörg málin hjer á Alþingi, sem eftir miklar umræður verða að engu, og væri illa farið, ef svo tækist til um þetta. Þinginu hefir oft, og ekki að ástæðulausu, verið legið á hálsi fyrir það, hve lítill árangurinn verði af starfi þess. — Hjer er á ferðinni mál, sem ekki má verða til þess, að þessi orðrómur styrkist.