09.05.1923
Efri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1858 í B-deild Alþingistíðinda. (1716)
23. mál, fjáraukalög 1920 og 1921
Frsm. (Karl Einarsson):
Eins og hv. þingdeildarmönnum er kunnugt, þá voru gerðar verulegar breytingar á frv. þessu í hv. Nd., og get jeg ekki látið hjá líða að gera grein fyrir þeim breytingum, einkum þar sem nefndin hefir fallist á þær og þær ástæður, sem færðar voru fyrir þeim, jafnframt því, sem jeg vísa til nál. á þskj. 600. Jeg ætla því að ganga í gegnum þessar brtt. á þskj. 352, sem allar voru samþyktar í háttv. Nd. Þá skal jeg fyrst geta þess við 1. brtt., að mismunurinn á upphæðunum hefir sparast frá fyrra ári Um 2. brtt. má geta þess, að upphæðirnar falla niður, og er það viðbót launa og dýríðaruppbót á launum starfsmanna stjórnarráðsins. Sömu reglu hefir verið fylgt alstaðar í frv. Sama er að segja um 3., 4. og 5. brtt., en jeg vil þó geta þess við brtt. þessar, að þar vantaði inn fjárveitingu fyrir síðara árið, en úr þessu var bætt, en svo dregin frá launaviðbót og dýrtíðaruppbót. Sama er að segja um 6. brtt., að þar er dregin frá dýrtíðaruppbót. 7. brtt. gengur út á það að draga frá laun og dýrtíðaruppbót fangavarða við hegningarhús. Þá er 8., 9. og 10. liður; þar vantaði fjárveitingu síðara árið. 11. brtt. kemur af því, að upphæðin hafði sparast fyrra árið. 12. brtt. er um skrifstofukostnað landlæknis; þar vantaði aukafjárveitingu. Við 13. brtt. er rjett að geta þess, að upphæðir þær, sem þar eiga að falla niður, hafa ekki verið borgaðar fyr en síðasta ár. Þá eru 14., 15. og 16. brtt.; upphæðirnar lækka um laun og dýrtíðaruppbót læknanna. í liðunum, sem taldir eru upp í 17. brtt., um að upphæðirnar falli niður, er um lögákveðin gjöld að ræða, og er ekki venja að leita aukafjár veitingar fyrir þeim. Sama er að segja um j-liðinn í 18. brtt., en á g-liðnum hafði sparast fyrra árið, svo aukafjárveiting var óþörf. Í Reykjavík eru laun póstmanna lögákveðin eftir launalögunum, og því eiga liðirnir eftir 19. brtt. að falla niður. 20. og 21. brtt. stafa af því, að báðar upphæðirnar vantaði í hið upphaflega frv. Samkvæmt 22. brtt. er fjárveitingin lækkuð; mismunur sparaður fyrra árið. Aukafjárveitingin fyrir fyrra árið er lækkuð um 100000 kr. eftir 23. brtt., sem svarar því, sem borgað hefir verið út vegna brunans í Borgarnesi, en megnið af þessu kvað vera endurgreitt, enda sjálfsagt að borga skaðann. Eftir 24. brtt. er fyrri fjárhæðin lækkuð, en bætt inn vantandi fjárveitingu síðara árið, og svo dregin frá laun og dýrtíðaruppbót. 25.–33. brtt. eru allar þannig tilkomnar, að það, sem sparast hefir fyrra árið, færir fjárveitinguna niður síðara árið. eða það, sem sparað er síðara árið, færir fjárveitinguna niður fyrra árið, eða öll aukafjárveitingin fellur burt af sömu ástæðum. Brtt. 34 fellir niður fjárveitingu. sökum þess, að engin framkvæmd varð, sem greiða átti fyrir með fjárveitingunni til Þorsteins Jónssonar & Co., en svo var nokkru af þessu fje varið til annara skipa, til strandferða. Þá fellur einnig dýrtíðaruppbót til símamanna niður með 35. brtt. Brtt. 36 er þannig til komin, að síðara árið vantaði inn fjárveitingu, en aftur á móti dregin frá dýrtíðaruppbótin. Með brtt. 37 er bætt við 400 kr., til að leiðrjetta prentvillu í frv. Viðvíkjandi 38. brtt. get jeg tekið það fram, að fyrra árið sparaðist meira en nemur upphæð þeirri, sem feld er niður. Fjárhæðin er með 39. brtt. færð niður síðara árið, því að afgangur varð af símamannadýrtíðaruppbót fyrra árið, og auk þess voru í fjárlögunum veittar 49000 krónur hvort árið til launauppbóta, og það þess vegna dregið frá. Eftir 40. brtt. fellur liðurinn niður, og er það aðstoðarmannslaunauppbót og dýrtíðaruppbót. Um 41. brtt. má geta þess, að annað árið vantaði 59000 kr., en hitt árið sparaðist um 15000 kr. 42. og 43. brtt. eru leiðrjettingar á prentvillum. 44. brtt. er fram komin vegna þess, að mismunurinn sparaðist fyrra árið. 45. brtt. leggur til, að liðurinn falli niður. Upphæðin sparaðist fyrra árið. Eftir 46. og 47. brtt. eru settar inn upphæðir, sem vöntuðu, 48. og 49. brtt. stafa af því, að upphæðir spöruðust síðara árið. 50. brtt. er fram komin af því, að þar vantaði aukafjárveitingu fyrra árið. 51. brtt. er fram komin af því, að þar sparaðist fyrra árið. 52. brtt. gengur út á að bæta við 800 kr. fyrra árið, sem vöntuðu. 53. og 54. brtt. eru fram komnar af því, að tilsvarandi upphæðir höfðu sparast hitt árið. Eftir 55. brtt. eru lækkaðar upphæðir, því að dregin er frá dýrtíðaruppbót kennara. 56. brtt. er til komin af því, að stjórninni var heimilað af þinginu að borga 1200 kr. hvort árið af launum Smára, en þau komu ekki til útborgunar, þar eð hann varð kennari við mentaskólann. 57. brtt. er fram komin af því, að mismunurinn hefir sparast fyrra árið, og sama er að segja um 58. og 59. brtt. Og loks er 60. brtt., sem fer fram á, að liðurinn falli niður. Lögskipuð útgjöld.
Læt jeg svo úttalað um hinar einstöku breytingar, sem gerðar hafa verið á hinu upprunalega frv., sem lagt var fyrir þingið. Yfir höfuð má segja, að fjhn. felli sig vel við till., enda tíminn nú orðinn naumur til þess að koma fram með breytingar. Engin ákveðin regla var viðhöfð í frv. eins og það kom frá hæstv. stjórn, en samræmisins vegna hefir hv. fjhn. Nd. lagfært ýmislegt, sem illa gat samrýmst hvað öðru, og hefir fjhn. Ed. fallist á það. Enda þótt reynt hafi verið að spara alt, sem hægt var, þá var það vitanlegt, að gjöldin mundu verða mjög mikil umfram áætlun, og er þetta skiljanlegt, því að dýrtíðin fór altaf sívaxandi, árlega, mánaðarlega og jafnvel vikulega, og því aldrei hægt að vita, ekki einu sinni með mánaðar fyrirvara, hvað eitthvað mundi kosta. Eitt er það, sem altaf má deila um, hvort rjett hafi verið að framkvæma ýmislegt, sem framkvæmt var, en jeg vil ekki fara út í það hjer. Jeg álít, að hinn mikli tekjuhalli stafi sumpart af lagafyrirmælum, sumpart af ýmsum till. nefnda og þingsályktunum, svo að hv. þing eigi ekki minsta sök á því, hversu mikið fje var notað þetta fjárhagstímabil. Mæli jeg svo að endingu með því, að frv. verði samþykt svo sem það hjer liggur fyrir.