11.05.1923
Efri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1861 í B-deild Alþingistíðinda. (1718)
23. mál, fjáraukalög 1920 og 1921
Jónas Jónsson:
Jeg hefði gert ýmsar athugasemdir við frv. þetta, ef það hefði komið hjer til umræðu fyr á þinginu og tími verið nægur. En þar sem hjer er aðeins um sögulegan atburð að ræða, og sú meðferð, sem þingið hefir á þessu frv., breytir því í engu, þá tel jeg óþarfa að ræða um frv. nú, en síðar gefst mjer máske tími til að víkja nokkuð að efni þess í öðru sambandi.