05.04.1923
Efri deild: 32. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1884 í B-deild Alþingistíðinda. (1776)

9. mál, vatnalög

Frsm. (Guðmundur Guðfinnsson):

Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta mál nú. Nefndin hefir borið fram 4 brtt. á þskj. 268.

1. brtt. er við 22. gr. frv. Nefndinni þótti, við nánari athugun, sú grundvallarregla tryggari, að miða vatnsskatt við fasteignamatsverð en brunabótavirðingu.

Þá er 2. brtt., sem er við 23. gr. Þar er lagt til, að í stað orðanna í 1. lið: „er liggur að lóð hans“ komi: er lóð hans telst til. Þetta þótti nefndinni skýrara, ef um bakhús væri að ræða.

Þá hefir nefndin gert brtt. við 65. gr., að í stað „200 eðlishestöflum“ komi: 500 eðlishestöflum.

Síðasta brtt. er við 89. gr. í stað orðanna „notkun þeirra“ komi: gerð þeirra og notkun. Nefndinni þótti nauðsynlegt, að haft væri einnig eftirlit með gerð holræsa, því að vel gætu þau annars verið svo úr garði gerð, að þau væru beinlínis heilsuspillandi.

Þá eru brtt. hv. 2. þm. Eyf. Hin fyrri er um skýrari skilgreiningu á almenningum. Nefndin telur þá breytingu ekki nauðsynlega, en vel má vera, að einhver hluti nefndarinnar fylgi henni.

Hið sama er að segja um 2. brtt. háttv. þm., við 7. gr. Nefndin telur hana ekki nauðsynlega og telur vafasamt, hvort sá skilningur, sem háttv. þm. leggur í 7. gr., sje rjettur.

Hefi jeg svo ekki fleira að taka fram þessu viðvíkjandi, en óska, að frv. verði samþykt.