05.04.1923
Efri deild: 32. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1898 í B-deild Alþingistíðinda. (1782)
9. mál, vatnalög
Jónas Jónsson:
Jeg vildi við þessa síðustu umr. tala örfá orð um málið í heild, en sje ekki ástæðu til að blanda mjer inn í umr. um einstakar gr. Það lítur út fyrir, að menn sjeu hjer alment á þeirri skoðun, að meiri hlutinn hafi ekki haft rjett fyrir sjer. Jeg held, að allir þeir, sem talað hafa, hafi litið svo á, að vatn væri að íslenskum lögum eign landeigenda. Jeg þarf því ekki að tala um þetta, en ætla heldur að koma inn á aðra hlið málsins, sem hingað til hefir verið lítill gaumur gefinn. Það hefir verið ósk meiri hlutans og margra annara, að ríkið ætti vatnsrjettindin, en þessari ósk er hægt að fullnægja í aðalatriðum á annan hátt en að brjóta lög á mönnum. Það hefir verið ljóst tekið fram af háttv. 4. landsk. þm. (JM) og hæstv. atvrh. (K1J), að hvort sem heldur er litið á sögulega eða lagalega hlið málsins eða farið eftir rjettarvitund þjóðarinnar, þá verður svarið altaf, að sá á vatnið, sem á botninn.
Ósk meiri hlutans um að ná vatnsrjettindunum undir þjóðfjelagið hefir því ráðið tillögum þeirra.
En þá kem jeg að þessari nýju hlið málsins, sem er greiðfærari og sanngjarnari leið, og það er skattaleiðin. Hin leiðin, að lýsa yfir eignarrjetti ríkisins, yrði þýðingarlaus, því að dómstólarnir mundu úrskurða það á annan veg landeigendunum í vil. En hitt er áreiðanlegt, að ríkið getur eignast, eða sama sem eignast, fossana með breytingu á skattalöggjöfinni, með því að leggja verðhækkunarskatt á stærstu fossana. Það er nauðsynlegt fyrir ríkið að fá umráð fossanna, því það getur komið til mála, að erlendir keppinautar kaupi þá til þess að láta þá vera ónotaða, og útiloka þannig samkepnina frá hálfu Íslendinga. Það hefir þegar bólað á ugg í þessu efni, og hann er líklega ekki með öllu ástæðulaus. Jeg ætla ekki að ræða þetta frekar nú, aðeins skjóta því fram til athugunar.
Þá vil jeg víkja að örfáum aukaatriðum. Háttv. 4. landsk. þm. (JM) kunni illa við, að blað eitt hafi talað um vatnsránskenningar; en hvað var hægt að kalla það annað en vatnsrán, sem meiri hlutinn gerði ráð fyrir. Og af því að háttv. þm. (JM) er á sama máli og jeg viðvíkjandi eignarrjettinum, þá skil jeg ekki, hví honum fellur þetta svo illa.
Viðvíkjandi því, hver sje höfundur frv., get jeg vitnað til orða háttv. 2. þm. Eyf. (EA). Orðalag frv. skiftir minstu í þessu atriði, heldur hugsun þess, og það er á allra vitorði, að hana hefir háttv. 1. þm S.-M. (SvÓ) borið fram öðrum fremur og barist fyrir. Það er því sögulega rjett að kenna frv. við hann.
Jeg tek undir það með hæstv. atvrh. (KIJ), að það var í alla staði óviðeigandi að láta prófessor Einar Arnórsson undirbúa frv. Þetta liggur í augum uppi, og jeg á erfitt með að skilja afstöðu hv. 4. landsk. þm. (JM), sem hefir altaf verið í andstöðu við lagalegar skýringar þessa manns á þessu máli. Og það hefði verið óeðlilegt að ætlast til, að maðurinn gæti samið frv. sjer þvert um geð.
Þá mintist háttv. 4. landsk. þm. (JM) á Pjetur heitinn Jónsson og hve illa hann hefði kunnað andstöðunni gegn frv. Mjer er ekki svo sjerstaklega í minni sú „kritik“, sem þá kom fram, en það var víst ekki nema eðlilegt, að hún kæmi fram, eins og á stóð.
En fyrst háttv. 4. landsk. þm. (JM) fór að bera skjöld fyrir minningu þessa mæta manns, þá hefði ekki virst minni ástæða til fyrir hann að minnast á ritling, sem út kom á síðastliðnu hausti, eftir einn af þingmönnum þessarar deildar. Í þeim ritlingi var gefið í skyn, að frv. um einkasölu á kornvöru, sem Pjetur heitinn Jónsson, þá ráðherra, bar fram á þingi, hefði verið borið fram í miður lofsverðum tilgangi og af óhreinum hvötum. Er undarlegt, að þessi ræðumaður skuli ekki hafa fundið hvöt hjá sjer til að bera blak af sínum látna vini.
Viðvíkjandi því, sem sami háttv. þm. (JM) sagði um óábyggilegar þingfrjettir, sem bærust blöðunum, þá vil jeg segja það, að það mun nú einmitt eiga sjer stað, að einn þingskrifari, þó ekki í efri deild, hefir flutt einu dagblaði hjer í bænum rangar skýrslur um það, sem gerist á þinginu. Er það mjög óviðeigandi, að þingskrifarar, sem launaðir eru af landsins fje, fari með slíkar ósannar fregnir í blöðin, og vil jeg skjóta því til hæstv. forseta, að þeir láti slíkt eigi viðgangast.