25.04.1923
Neðri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1907 í B-deild Alþingistíðinda. (1792)

9. mál, vatnalög

Bjarni Jónsson:

Jeg vil láta þess getið við háttv. deildarmenn, að jeg hefi boðað til fundar í vatnamálanefndinni, en þó ekki orðið neitt úr fundahöldum vegna fjárlagafundarhalda, sem eigi þótti rjett að tefja. Hafði jeg því ákveðið fund næsta dag, en er sá dagur rann, var þegar búið að kljúfa nefndina og koma fram með meiri hluta nál., enda þótt nefndin hefði enn eigi komið saman til annars en að kjósa sjer formann og ritara. Nú er sýnilega verið að reyna að koma í veg fyrir, að minni hluta nefndarinnar vinnist tóm til þess að átta sig á því, sem orðið er, og koma með sínar till. og svara þessu nál. meiri hl.

Annars vil jeg geta þess, ef háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) hefir haldið, að jeg hafi dregið þetta mál á langinn af hrekkvísi við hann, að heimilisástæður mínar eru þannig, að mjer er eigi kleift að vera að heiman að morgni dags til hádegis, og get því eigi haldið fundi á þeim tíma dagsins.