03.05.1923
Neðri deild: 56. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1947 í B-deild Alþingistíðinda. (1811)

9. mál, vatnalög

Bjarni Jónsson:

Jeg verð að biðja hv. deildarmenn, sem hjer eru eftir inni, og eins þá stóla, sem auðir eru og ekki hafa verið teknir með á uppboðið, að fyrirgefa, þó að jeg haldi ekki langa ræðu. Jeg hafði ekki búist við því, en ætlaði háttv. frsm. minni hl. (JÞ) að bera þunga dagsins, eins og hann nú hefir gert. Þó var það eitt atriði í ræðu hans, sem jeg vildi minnast á, þar sem hann sagðist tala sjerstaklega fyrir sig og Guðmund Björnsson landlækni. Jeg sá ekki, að þar kæmi fram neinn mismunur á skoðunum mínum og þeirra í þessu máli. Ef þetta er síðasta tækifærið fyrir mig eins og hann til að tala í þessu máli, þá er rjettast, að jeg skýri mína afstöðu.

Það hefir frá upphafi vakað fyrir mjer að gera rjett í málinu, og þá um leið að gera það innan þess ramma, að þjóðarheildinni væri trygð varðveisla á rjettinum til vatnsorkunnar.

Þegar uppgangurinn var sem mestur og talað var um stóriðju hjer á landi, þá hjeldu menn, að þeir ættu vatnsorkuna, og höfðu selt mikinn hluta hennar út úr landinu.

Nú er mjer ljóst, að fámenn bændaþjóð má ekki við því, að stóriðja rísi hjer upp. Innflutningur fólks mundi aukast mjög, ef nokkuð yrði úr framkvæmdum, svo að máli og menningu þjóðarinnar yrði hætta búin.

Í öðru lagi vakti það fyrir mjer, ef fossabraskið hjeldi áfram, að þá mundu náttúrugæðin eða vatnsorkan verða of dýr fyrir bændur, svo að þeir gætu ekki notað hana til þess að lýsa og hita bæi sína.

En það vakti fyrir mjer, að eftir því sem tímar liðu fram, þá tæki þjóðin sjálf vatnsorkuna í sína þjónustu, þegar framkvæmanlegt þætti. En eftir 50 ár mætti t. d. hugsa sjer, að farið yrði að reisa smástöðvar, og þá er gott að geta gripið til vatnsorkunnar, og eins, ef menn vildu, til stærri iðju.

Jeg hefi aldrei verið innilokunarmaður, þó að það hafi verið sagt um mig í blöðunum. Í ritgerð, sem jeg birti í tímariti og nefndi: „Gaktu hægt um gleðinnar dyr“, talaði jeg um virkjun á efri hluta Sogsfossanna; áleit það ekki geta leitt til hættulegrar stóriðju. Þetta var minn hugur; og frá upphafi var enginn mismunur á milli mín og Guðmundar Björnssonar, en eitthvað lítilsháttar bar á milli okkar Jóns Þorlákssonar, en þó var það ekki þessu viðkomandi.

Fyrir okkur öllum vakti sama framtíðarhugsjón, að innan ekki mjög langs tíma gætu býli þessa lands fengið birtu og yl frá straumvötnum þess. Ekki frá stóriðjustöðvum, því að þá yrði veitan of dýr, heldur frá smærri stöðvum, fleiri og hagfeldari, þar sem orkuveitan gæti orðið ódýrari.

Það, sem háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) þótti „kringilegt“ í nefndaráliti minni hl., býst jeg við, að hafi verið þetta, að við viljum ekki leyfa mönnum að braska líka með smærri straumvötn og læki. Við viljum forða þeim, til þess að þau verði landsmönnum sjálfum að notum. Við viljum láta geyma orkuforða hinna stærri straumvatna, þangað til hagur þjóðarinnar er orðinn þannig, að hún sjálf er fær um að taka þau til notkunar.

Þegar við nefndarmenn hófum störf okkar í þessu máli. vissi jeg ekki annað en að sú torfæra yrði á vegi okkar, að einstakir menn ættu vötnin, nje hvernig hún yrði yfirstigin. Jeg bjóst ekki við, að þeir fossar, sem búið var að pranga út, yrðu teknir aftur undir landið, nema gegn því að greiða handhöfum þeirra skaðabætur.

En mjer til mikillar gleði, þegar jeg fór að rannsaka málið, sá jeg, að fyrir þessu var enginn fótur; hjer á landi hefi aldrei verið til eignarrjettur á rennandi vatni. Enda er það ekki eðlilegt, að svo sje.

Þá skal jeg minnast á þá ástæðu háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ), sem hann ætlaði að dauðrota með allar okkar röksemdir. Á einum stað í Jónsbók. Llb. 56. kap., bls. 188. stendur þetta, sem jeg skal lesa upp. með leyfi hæstv. forseta :

„Hverr maðr á vatn ok veiðistöð fyrir sinni jörðu ok á sem at fornu hefir verit“.

Þetta þýðir aðeins, að hann eigi rjett til að veiða fyrir sinni jörðu, því að þetta eru veiðiákvæði.

Samkvæmt þessum ákvæðum Jónsbókar eru þau, sem standa í Landabrigðisþætti Grágásar II 438, bls. 509–510, að „þar er menn eigu merkivötn saman, þá á hverr at veiða fyrir sínu landi“. Það, sem hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) heldur fram um þessa lagastaði, eru því tómir draumórar. Að jeg sje ekki einn um að skýra þetta ,,á“ í 56. kap. Llb. Jónsbókar, nægir að benda á lög frá 19. febr. 1886, um friðun á laxi, 2. gr., þar sem svo er kveðið að orði: „Eigi einn maður veiði í á“ etc. En hvernig stendur þetta nú í Grágás?: „Eigi eigu menn at leggja net um þvera á, nje gera teinor í eða gera garða (I eigi gerða svá, at eigi sje hlið á) eða ker, nema einn maður eigi alla ána“.

Þetta skildi löggjafinn 1886 svo, að þarna sje að eiga ána sama og að eiga veiðina í ánni. Voru þá á þingi lögfræðingar engu ósnjallari háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) og eigi verri löggjafar. Mun svo vera, að hvert eitt atriði, er hann vill tilfæra sinni skoðun til stuðnings, mun jeg geta ósannað fyrir honum, með því að benda aðeins á lögbækurnar sjálfar og tilfæra álit löggjafa og lögfræðinga fornra og nýrra, sem alt styður mína skoðun, án þess að jeg nefni prófessor Einar Arnórsson, sem hefir komist að alveg sömu niðurstöðu. Hafði jeg gaman af því, hve skoðanir hans í þessu máli komu vel heim við það. er jeg hafði áður talið rjett, enda þótt jeg sje ekki lögfræðingur. Það er með þetta „vatn og veiðistöð“, að það er það. er á grísku heitir ?v ??? ?vo?v, eða „eitt í tvennu“. Er það algengt bæði í grísku og latínu og íslensku, og hefir þetta vilt þá bókstafsþræla, sem ekki kunna málið betur. Er það og alveg rjett, og sannar mitt mál, sem háttv. 3. þm. Reykv. (JÞ) tók fram, að alstaðar þar, sem Grágás hefir „á“, þar hefir Jónsbók ,,má“ Sýnir það, að hjer er ekki um eignarrjett að ræða, heldur takmarkaðan rjett, sem ríkið ljer eigendum jarðanna.

Þegar þessa er gætt, verður augljóst, hvað átt er við í þessu þskj., sem háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) kallaði kringilegt. Sökum þess, að menn hafa aldrei haft meira en afnotarjett yfir vatni, hafa þeir aldrei getað selt útlendingum meira. Og ef einhver útlendingur skyldi hafa álitið, að hann við kaupin fengi eignarrjett yfir vatninu, þá á hver við sinn sala, og rjettur hans verður engu að meiri fyrir það heldur en sá átti, er seldi. En fari svo, að frv. yrði samþykt óbreytt, þá fengju útlendingar meiri rjett en þeir hafa haft hingað til, því í 1. gr. frv. er hrein skilgreining á eignarrjettinum, eins og lagaprófessor háskólans kennir hana lærisveinum sínum.

Jeg heyrði hæstv. atvrh. (KIJ) tala um það, að maður kæmist eigi nær takmarkinu, þótt varatill. okkar minnihlutamanna yrði samþykt, því þá hjeldi hver fram sinni skoðun eftir sem áður á þessu atriði. Og þá slepti þingið úr höndum sjer úrskurðarvaldinu í málinu, og var sem hann teldi miður heppilegt, að þingið skæri eigi úr flóknum lagamálefnum. En þá finst mjer mikið færst í fang, ef vjer þingmenn eigum að gerast hæstarjetrardómarar í svo flóknu máli, sem eingöngu heyrir undir vísindin og dómstólana. Jeg býst eigi við, að menn vilji taka á sig ábyrgðina á því, að láta svo mikinn rjett af hendi til einstaklinga, og þeim, sem svo væru gerðir, ætti ekki að hrjósa hugur við að greiða atkvæði með smáum styrkveitingum, er þeir vilja firra ríkið svo dýrmætum rjettindum. Til þess að forðast þetta er beinasta og besta leiðin að láta dómstólana skera úr málinu, og er það engin áhætta. Má vel vera, að úskurðurinn falli meiri hluta nefndarinnar í vil. Að minsta kosti er jeg ekki sá maður, að taka á mig ábyrgð sem æðsti dómstóll í þessu máli. Þetta er það, sem skilur meiri og minni hlutann; minni hl. vill láta dómstólana skera úr þessu, en meiri hlutinn, með háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) í broddi fylkingar, heimtar sinn dóm staðfestan af Alþingi.

Jeg skal í þessu sambandi minnast á, að konungsríkið Saxland hefir látið sjer sama að fara sömu leið og minni hl. fer fram á, að farin verði. Þar var einnig deilt um rjettindi yfir vatni, og lagði stjórnin fyrir þingið frv. um það, að vatn skyldi vera alþjóðareign. En þingmenn sögðu, að þeir gætu ekki ákveðið neitt um þetta, heldur væri það vísindanna og dómstólanna að gera það. Er það og sannmæli, að þetta er dóms- og vísindamál, en ekki þingmál. Jeg býst heldur ekki við, að háttv. þm. vilji fara að veita útlendingum meiri rjett yfir vötnum hjer en verið hefir. Ef svo væri gert, yrði vitanlega ekkert þrot á vatnaprangi. Braskfjelög yrðu stofnuð og menn sendir út um lönd til þess að fá auðtrúa útlendinga til þess að kaupa hlutabrjef í vatnafjelögum. Við þetta yrði vatn svo dýrt hjer, að enginn gæti hagnýtt það, og ef ætti að taka það eignarnámi í almenningsþágu, yrði það ókleift sökum dýrleika, því taka yrði tillit til gangverðsins eða prangverðsins. Og eins og Einar Þveræingur spáði, að kotkörlum mundi þykja þröngt fyrir dyrum, ef Ólafur konungur fengi Grímsey, eins ætla jeg, að bændum mundi þykja ilt að þurfa að kaupa vatn á jörð sinni.

Það dugir ekki að hespa þetta og spinna lopann eins og ræður úr einu sæti hjer. Það er áreiðanlega ekki rjett af háttv. þm. að láta þetta ganga gegnum greipar sjer án þess að gefa sjer nægan tíma til þess að hugsa og ræða málið og setja sig inn í hvert atriði. Það þyrfti meiri tíma og meira kapp en hægt er á þeim tíma, sem eftir er af þessu þingi, til þeirra hluta. Sannleikurinn er sá, að þótt þetta mál sje lengi búið að flækjast hjer, hefir það aldrei verið verulega rætt, nema þá helst á þinginu 1919. Árið 1921 var flutt hálf framsöguræða, og sofnaði það þá þar með. (JÞ: Hinn helmingurinn kom nú). Mætti gjarnan gefa frest í nokkur ár. meðan 3. ræðan væri samin.

Hæstv. atvinnumálaráðherra talaði um, að sómi þingsins væri undir því kominn, að frv. næði nú fram að ganga. Eftir því lítum við víst á málið hvor frá sínu sjónarmiði, því ekki vil jeg telja sæmd þingsins að meiri, þótt það ljeti vanhugsuð frumvörp ganga fram, illa undirbúin og lítið rædd, og síst þegar um annað eins framtíðarmál er að ræða sem hjer, þar sem er ljós og ylur í landinu. Munu margir hugsa til þess síðar, er þeir sitja í kulda og myrkri, að ljós- og ylgjafinn var burtu látinn fyrir ekki neitt. Er ekki samboðið sóma þingsins að hrapa svo að þessu. Er betra að gerhugsa málið en greiða þannig atkvæði um það nú, að iðrast þurfi þess síðar.

Háttv. frsm. meiri hl. (SvÓ)), sá sem strauk úr nefndinni, taldi það vera „hugsanfræðilegan ómögulegleika“, að samkomulag yrði um þetta. En jeg vil biðja þennan háttv. þm. að benda mjer á þá hugsunarfræði, er hann hefir lesið, því samkvæmt mínum skilningi ætti þetta vel að geta gengið. Svo var hann að minnast á stjórnarbyltingum sem jeg held, að hafi átt að skilja svo, að tillögur minni hl. mundu valda stjórnarbyltingu, ef þær næðu fram að ganga, og mun hann þar hafa átt við þá grein í stjórnarskránni, að eignarrjetturinn skuli vera friðhelgur. En ef ríkið hefir nú altaf átt vatnið, hver gerir þá byltinguna ?

Hitt má til sanns vegar færa, að hluti, sem enginn einstaklingur getur helgað sjer, þá á ríkið. En hver er þá með byltingunni, við, sem viljum fá óvilhallan úrskurð dómstólanna um málið, eða hann, sem vill láta þingið setja lög um þetta efni, sem máske yrði til þess, að það afsalaði dýrmætum rjettindum úr hendi ríkisins?

Jeg vil enn benda á þessi orð úr Grágás og Jónsbók, gera og á að gera. Hver leyfir slíkt annar en sá, sem valdið hefir, löggjafinn? Hjer kemur glögt fram, að það er ríkið, sem þessum hlut á að ráðstafa. Jeg get líka nefnt eitt dæmi, sem tekur af öll tvímæli. Það er, að ef á flytur sig úr farvegi sínum og yfir á annars manns land, þá er raunar eiganda beggja jarða heimilt að veita henni aftur í sinn forna farveg, en sje það ekki hægt, t. d. sökum jarðskjálfta eða annars slíks, þá missir sá, sem þá jörðina á, er áin flutti sig úr, allan rjett til hennar framvegis. Honum er ekki heimilt að veiða lengur einn fisk í henni, hvað þá meira. En hvað flyst svo annað yfir á annars manns land, að eigandinn geti ekki heimtað fult verð fyrir? Þetta er glögt dæmi þess, að hjer er ekki um eignanjett að ræða, og betra dæmi en háttv. frsm. meiri hl. getur komið með á fornri eða nýrri íslensku. (HK: En það getur margt fleira flust yfir á annars manns land. Já, en þá er altaf hægt að heimta það aftur, eða fult verð fyrir. Jafnvel reka má sækja í land annars manns, ef búið hefir verið að merkja hann rekamarki. (PÞ: En skriða?). Já, þarna kom það. Ef skriða væri eign, mætti sjálfsagt finna það út úr fasteignamatinn í Mýrasýslu, hvers virði hún væri.

Þá talaði háttv. frsm. meiri hl. (SvÓ) um „idiotisk“ lög. Af því að talsvert hefir verið rætt um grískukenslu hjer í háttv. deild, þá þykir mjer gott, að hann er farinn að leggja sig eftir henni og lætur hrjóta orð og orð á stangli.

Jeg skal ekki fara mörgum orðum um það, er háttv. frsm. meiri hl. (SvÓ) vill reyna að telja þeim háttv. deildarmönnum, er ekki vita öll deili á málinu, trú um, að hvergi á Norðurlöndum hafi verið deila um eignarrjettarhugmyndina. Háttv. frsm. minni hl. (JÞ) hrakti þetta, og jeg vil leyfa mjer að benda á, þó ekki væri nema Konungsáll í Svíþjóð, er mál hafa risið af svo tugum skiftir. Það er einnig hárrjett hjá háttv. frsm. minni hl. (JÞ), að í norskum lögfræðiritum voru miklar deilur um þetta efni áður en Norðmenn tóku það óyndisúrræði 1887 að gefa vatnið. Þó var þeim nokkur vorkun í samanburði við oss, þar sem fornar lögbækur norskar hafa óskýrari ákvæði í þessu efni en lögbækur vorar. Sjest það berlega af því, að í Hákonarbók eða Járnsíðu eru þessi ákvæði helmingi styttri en í Grágás. Er bersýnilegt, að menn hafa ekki viljað una þessu, og eru því öll ákvæði Grágásar um þetta tekin upp í Jónsbók. Menn vildu ekki þola, að fyrirmæli lögbókarinnar væru ónákvæmari en áður. En í Noregi hafði margskonar nýting á vatni farið fram frá fornu fari, svo sem trjáfleyting, og ýmsar venjur verið í því efni, og dró það ásamt öðru Norðmenn til þess að gefa vatnið. En síðan hafa þeir altaf verið að berjast við að semja sjerleyfislög, til þess að taka aftur þessa gjöf sína.

Í kosningabaráttu minni síðast varð okkur háttv. 5. landsk. þm. (JJ) sundurorða um þetta mál, eins og margt annað. Hann taldi þá rjett, að öll vötn þyrftu að vera ríkiseign, en því mætti koma fram á annan hátt en með því að skilja rjett gildandi lög. Benti hann á þá leið, að leggja skatt á vatnið og taka það þann veg af mönnum. Þá var landfleygt að kalla oss vatnsræningja, sem vildum halda fram yfirráðarjetti ríkisins á vatni, en þá mætti kalla hina skattræningja. Munurinn á þessum tvennskonar ránsmönnum er sá, að þeir fyrnefndu telja landeigendur ekki hafa neinn eignarrjett, og taka því ekki neitt frá þeim, en hinir vilja taka það frá þeim, er þeir telja þá eiga að lögum. Býst jeg við, að telja megi háttv. frsm. meiri hl. (SvÓ) í flokki þessara skattræningja.

Þá talaði háttv. frsm. meiri hl. (SvÓ) um, að hann hefði aldrei sjeð kringilegra þingskjal en nál. minni hlutans. Þó að menn tali ýmislega um háttv. frsm. minni hl. (JÞ). hefi jeg aldrei heyrt um hann sagt, að hann væri svo heimskur, að hann byggi til kringileg skjöl. En það er ef til vill einhver sjerstakur lagaskilningur í þessu orði austur á fjörðum. En aldrei hefi jeg heyrt skringilegri ræðu en framsöguræðu háttv. frsm. meiri hl. (SvÓ). Hvað sem annars má segja um gáfur þess hv. þm., hefir hann aldrei haft minsta vit á þessu máli, og fær aldrei. Það er spaugilegt að heyra hann halda langa ræðu, þegar hann sýnir í hverju orði, að hann er ekki fær um að fást við lagaskýringar.

Jeg á þá ótalað um eitt atriði, en það er, hve mikið kapp hv. frsm. meiri hl. (SvÓ) og fjelagar hans leggja á að koma þessu frv. nú gegnum þingið. Satt er það að vísu, að aldrei hefir hnífur þeirra komið í jafnfeitt sem nú. Háttv. Ed. hefir nú afgreitt frá sjer þetta frv., sem lögfestir eignarrjett manna á rennandi vatni. Auk þess hefir sú hv. deild sent hingað annan lagabálk um vatnsorkusjerleyfi, þar sem ekki er sagt annað en: „gerðu svo vel og taktu mig“. Það frv. er algerlega bygt á hinni stefnunni, að vatnið sje líkiseign, og getur því aldrei komið heim við þetta frv. eða samrýmst því. Úr þessari lagasamstæðu yrði hin fullkomnasta opingátt.

En af hverju liggur mönnum svo mjög á? Nú verður gengið til kosninga í haust. Til þessa hefir aldrei verið kosið um vatnamálið, og er það þó svo mikilvægt, að það væri vel þess virði. Jeg hygg, að minni samvisku yrði borgið, ef þjóðin fengi að leggja sinn dóm á málið í kosningunum. Þá er málið komið á hennar ábyrgð, og þurfa menn ekki að bera kinnroða, þó að þeim hafi á orðið einhver mistök. En það er næsta undarlegt ef síðasta þing fyrir kosningar fer að hrapa að því að berja þetta mál í gegn. Það er eins og menn sjeu að reyna að forðast það, að þjóðin fái að láta uppi vilja sinn í málinu. Þessir menn, sem eru svo sannfærðir um, að þeir skilji rjett ákvæði Grágásar og Jónsbókar og eru svo hárvissir um eignarrjettinn yfir vatninu, þora hvorki að leggja málið undir dóm þjóðarinnar nje dómstólanna. Ætli eitthvað annað geti ekki búið undir þessari afstöðu.