24.03.1923
Neðri deild: 28. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í C-deild Alþingistíðinda. (1903)

89. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Magnús Jónsson:

Jeg vil benda á, að ef frv. þessu verður vísað til stjórnarskrárnefndar, væri ástæða til að athuga annað mál í þessu sambandi. Það er að setja ákvæði um varaþm. fyrir Reykjavík. Til þess þarf að gera breytingar á 28. gr. stjórnarskrárinnar. Hlutfallskosningar leiða beinlínis með sjer nauðsyn þess að hafa varaþingmenn, því að það er augljóst, að annars ruglast hlutfall það, sem með þeim fæst milli fjölmennari og fámennari flokka, í hvert sinn sem þingmaður einhvers fámennari flokksins heltist úr lestinni. Þessu mundi þegar verða breytt, því að það hlýtur að vera komið inn fyrir ógát, ef ekki stæði 28. gr. stjórnarskr. í vegi, og er því augljóst, að ef á annað borð verður haggað við stjórnarskránni, þá er sjálfsagt að kippa þessu í lag.