27.02.1923
Neðri deild: 7. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í C-deild Alþingistíðinda. (1914)

17. mál, afnám yfirskjalavarðarembættisins við Þjóðskjalasafn Íslands

Forsætisráðherra (SE):

Háttv. 4. þm. Reykv. (MJ) brá mjer um, að jeg færi óvarlega með tölur. En þar sem enginn veit, hvenær þessi samsteypa muni komast í framkvæmd, hvaða tölur á þá að nefna, aðrar en þær sem nú gilda? Ef þessi sparnaður gengi þegar í gildi, næmi hann 9500 kr., og þó að það verði síðar, þegar launaupphæðin öll er orðin lægri, myndi hann ávalt jafngilda 9500 kr. nú. Og eigi að nefna einhverja upphæð, verður önnur en þessi ekki nefnd með neinum sanni.

Þetta er ein af hinum sífeldu tilraunum hv. þm. að gera allar sparnaðartillögur sem tortryggilegastar. Þessi hv. þm. (MJ) er framarlega í flokki þeirra manna, sem standa fast á móti öllum sparnaði. Þeir eru sumir, sem álíta „flott“ að spara ekki, en sem betur fer eru ekki allir jafnhrifnir af þeirri stefnu.

Nú rísa að vonum margar raddir gegn þeim sparnaði, sem hjer er farið fram á, og heimta sjerfræðinga í hverri grein. En ef ekki er auðið að sameina þessi embætti, verður sannarlega erfitt að finna nokkuð, sem má spara. Ef sjerstakan grúskara þyrfti á Þjóðskjalasafnið, mætti setja hann og launa honum sem aðstoðarmanni. En ef gera ætti söfnin sem alfullkomnust, þyrfti jafnvel að bæta við 10–20 sjerfræðingum. Þá yrðu þau líka hreinustu fyrirmyndir. Hv. þm. (MJ) mun að líkindum vilja verja fje til þessa, en jeg get ekki verið því fylgjandi.

Jeg vil leggja áherslu á, að ef mönnum er nokkur alvara að reyna að spara, verður að samþykkja þetta frv. Vona jeg, að raddir þeirra, sem því fylgja, bergmáli um allan þingsalinn.