27.02.1923
Neðri deild: 7. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í C-deild Alþingistíðinda. (1917)
17. mál, afnám yfirskjalavarðarembættisins við Þjóðskjalasafn Íslands
Sveinn Ólafsson:
Jeg hefi að þessu ekkert lagt til um embættafækkunina og engri afstöðu lýst til sparnaðarfrv. stjórnarinnar; þykir mjer því rjett að láta nokkur orð fylgja þessu síðasta frv. í röðinni.
Mig furðar að heyra jafnáköf og eindregin mótmæli og hjer hafa fram komið gegn frv., sjerstaklega er gætt er þess áhuga um fækkun og sameiningu embætta, sem fram kom á síðasta þingi, og eindreginna krafna almennings um þetta sama í mörgum þingmálafundargerðum margra sveita og hjeraða. Þarf enginn á því að villast, að þjóðin heimtar meiri hagsýni í launaveislum til opinberrar starfrækslu.
Auðvitað er það, að altaf verður álitamál, hvar byrja skuli og hverjir fyrst skuli víkja sæti, og fer það eftir álitum. Vil jeg strax geta þess, að æskilegra hefði mjer þótt, að byrjað hefði verið á afnámi annara embætta en sýslumanna, að minsta kosti jafnhliða þeim, og meira hefði það verið í samræmi við óskir þjóðarinnar, að afnumin hefðu verið sum embættanna hjer í Reykjavík, og fremur mundu þau mega missa sig en embætti í fjarlægum og strjálbygðum landshlutum, því að þar er verkahringur embættanna yfirleitt stærri og þörfin meiri. Þó vil jeg lýsa því yfir, að jeg tel fækkun sýslumannsembættanna forsvaranlega og afnám allra þeirra embætta, sem stjfrv. ræða um, og mun jeg fylgja þeim öllum, í þeirri von, að frekari fækkun embætta og opinberra starfsmanna hjer í Rvík fari á eftir en þeirra þriggja, sem fyrirliggjandi frv. ræða um, svo sem hæstv. stjórn einnig hefir lýst áhuga á.
Jeg vil þó geta þess, að afnám eins af embættum þessum er mjer viðkvæmt mál vegna aldurs þess og endurminninga þeirra, sem við það eru bundnar. Á jeg við biskupsembættið, sem jeg líka tel óaðskiljanlegt þjóðkirkjunni. En enga hættu álít jeg trúarlífi voru stafa af niðurlagningu þess, ef sú skipun er gerð á starfi vígslubiskupa, sem hæstv. stjórn hefir bent á við 1. umræðu málsins. Skal jeg eigi fjölyrða frekar um þetta að sinni. En það voru 2 atriði hjá hv. þm. Dala. (RJ), sem jeg hnaut við. Er jeg ekki sammála hv. þm. í því, að núverandi stjórn hafi ekki verið skipuð til að spara. Hún var einmitt til þess skipuð. Sparnaðarraddirnar voru háværar á síðasta þingi, og stjórnin var einmitt skipuð þegar sparnaðaraldan reis sem hæst. Var þessu eigi aðeins haldið að stjórninni af stuðningsmönnum hennar, heldur kom það og fram í stefnuskrárræðu hæstv. forsætisráðherra og við meðferð hinna svo nefndu sparnaðarfrv.
Hitt atriðið í ræðu hv. þm. hneykslaði mig þó meira. Hann hjelt því fram, að sparnaðartilraunir stjórnarinnar með afnám embætta leiddu til atvinnuleysis í landinu, líklega fyrir embættismenn og embættismannaefni. Var helst að skilja svo, sem þeir mundu fara á sveitina. Sýnist af þessu, sem hv. þm. liti svo á, að embættin sjeu til fyrir embættismennina, en ekki fyrir þjóðfjelagið.
En því trúi jeg ekki, að nokkur þessara manna, þótt úr embætti sínu færi, þyrfti að verða þurfalingur eða öðrum að byrði, enda eigi ólíklegt, að eftirsókn eftir embættisnámi rjenaði, ef skynsamleg fækkun embætta væri lögleidd.
Skal svo ekki fjölyrt meira um þetta; jeg vildi aðeins lýsa framangreindri aðstöðu minni til frv. þeirra, sem fram eru komin um fækkun og sameiningu embætta.