27.02.1923
Neðri deild: 7. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í C-deild Alþingistíðinda. (1919)

17. mál, afnám yfirskjalavarðarembættisins við Þjóðskjalasafn Íslands

Magnús Jónsson:

Jeg þarf ekki að svara ræðu hæstv. forsrh. mörgum orðum. Fanst mjer hún ekki þess verð, þótt hann ætlaði að drekkja mjer í freyðanda einum og orðagjálfri. Þetta ósjálfræði hæstv. forsrh. (SE) byrjaði hjer í gær og er nú lakara í dag. Menn munu enn hafa í minni frá því í gær, t. d. það, sem hann var að tala um, að stjórnarráðið ætti að hafa eftirlit með rjetttrúnaði í landinu og að syndin væri hið elsta í heiminum. Mundi hann á flestum kirkjuþingum hafa verið dæmdur sekur villutrúarmaður fyrir þau ummæli.

Hæstv. forsrh. brá mjer um það að Alþt. 1923, C. (35. löggjafarþing). vera ætíð á móti öllum sparnaði, hvernig sem honum væri háttað. Er það satt að því leyti, að ef hjer mega engar stöður vera eða embætti, er beri vott um, að hjer búi menningarþjóð, er jeg á móti þess háttar sparnaði. Jeg mun ekki vera með þeim ráðstöfunum, sem eru þess eðlis, að ef áfram er haldið, hljóti þær að skilja við þessa fornu menningarþjóð sem menningarsnautt fiskiver. Það er óþarft að vitna í 10–20 sjerfræðinga við stofnanir hjer. Slíkt tíðkast með stórþjóðunum, en við höfum ekki efni á því. En þó að við reynum að hafa hjer vísi að slíku, þó að við gerum okkur ekki að skyldu að kæfa hvern vísindamann í afgreiðslu daglegra anna á söfnum og slíkum stöðum, get jeg ekki sjeð, að það sje svo mikil goðgá, sem hæstv. kenslumálaráðherra (SE) sýnist þykja það.

Það er máske ekki heimtandi af hæstv. forsrh., að hann kunni að reikna, en þá ætti að mega ætlast til slíks af hæstv. fjármálaráðherranum. Og vil jeg nú biðja hann að reikna, hvort 5500 kr. laun geri nú, með 60% dýrtíðaruppbót, 9500 kr.? Ef nú svo skyldi reynast, sem jeg hygg að sje, að hjer skakki meira en 1000 krónum, hvar er þá geipan hæstv. forsrh. um, að reiknað sje með þeim tölum, sem nú gilda?