03.04.1923
Neðri deild: 32. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í C-deild Alþingistíðinda. (1924)
17. mál, afnám yfirskjalavarðarembættisins við Þjóðskjalasafn Íslands
Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson):
Mjer kom nokkuð á óvart, að mál þetta skyldi vera á dagskrá í dag, og hefði jeg gjarnan viljað geta búið mig betur undir það. En þegar jeg sá, að stjórnarskrárfrv. var á undan, þóttist jeg viss um, að þetta mál mundi ekki komast að. Hef jeg því ekki gengið eins vel frá framsögunni og jeg hefði óskað.
Jeg kvartaði undan því við 1. umr. þessa máls, að hæstv. stjórn hefði lagt litla vinnu í að skýra það fyrir Alþingi. Störf þeirra manna, sem hjer ræðir um, hafa verið unnin svo mjög í kyrþey, að þess er ekki að vænta, að mönnum sje alment kunnugt um þau. Hæstv. stjórn hefir þó þótt nægilegt að færa þá ástæðu fyrir þessu frv., að embætti þessi væru svo náskyld, að einum manni væri ekki ofvaxið að annast þau bæði. Hv. meiri hl. hefir þrætt nákvæmlega götu stjórnarinnar, án þess að færa nokkur rök fyrir þessari staðhæfingu. Nál. er ekki nema örfáar línur, og allar ástæðurnar, sem hann færir fyrir sínu máli, eru þessar sömu, að „störf skjalavarðar og bókavarðar eru naumast svo sundurleit eða óskyld, að eigi finnist maður, sem geti gegnt báðum störfunum, svo að viðunandi sje“. Þetta er álit hv. meiri hluta, en engin rök eru þó færð fyrir því, Þar er ekki greint, hver störfin eru og hvernig í því liggur, að þau eru svona náskyld, þó að það hafi verið vefengt með skýrum rökum við 1. umr. (M. G.: Ástæðurnar eru í stjfrv.). Já, einmitt þessi sama staðhæfing, án þess að reynt sje til að rökstyðja hana. — Eftir þessari röksemdarfærslu má segja alla skapaða hluti. Þá mætti alveg eins halda því fram, að störf presta og lækna eða sýslumanna og verkfræðinga væru svo náskyld, að auðveldlega mætti sameina þau. Ef menn mega velta frá sjer sönnunarskyldunni, geta menn haldið fram hvaða fjarstæðu sem er og haft endaskifti á allri tilverunni. Auðvitað getur þetta verið rjett og satt, þó það hafi ekki verið rökstutt, og er því ekki nægileg ástæða til að fella frv., að ekki hafa verið færð rök fyrir því.
Hv. frsm. meiri hl. (MG) fór fáum orðum um frv., svo að jeg þarf í raun og veru ekki að svara ræðu hans. Jeg veit ekki hug hv. deildar til þessa frv., en þó get jeg ekki skilið, að hún hafi látið töfrast eða sje snortin af ástæðunum í stjfrv. eða nál. meiri hl. Jeg treysti mjer ekki heldur til að töfra hv. deild og hef ekki hugsað mjer að gera það, en þó hefi jeg leitast við að sýna fram á í nál. mínu, að ástæður þessar eru ekki eins óyggjandi og hæstv. stjórn og hv. meiri hl. halda fram. Jeg skal taka það fram, að þó að jeg fari þessum orðum um nál. hv. meiri hl., vil jeg ekki með þeim kasta nokkurri rýrð eða lítilsvirðingu á þá menn, sem hafa skrifað undir það. Það er fjarri mjer. En þar sem einmitt svo skýrir og greinagóðir menn hafa fjallað um þetta og ekki komið með betri ástæður fyrir máli sínu, er það rík sönnun fyrir því, að ekki er auðið að færa veigameiri rök til stuðnings frv. Má því fastlega ætla, að nál. meiri hl. og ræða hv. frsm. (MG) sje tæmandi í þessu efni.
Menn ætla nú ef til vill, að svo mikið autoritet fylgi meiri hlutanum, einkum þar sem 4 nefndarmenn eru á sama máli gegn einum, að ekki sje gerlegt að leggjast á móti frv. En þá vil jeg leyfa mjer að vísa til álits mentmn. 1919, er lagði í einu hljóði á móti því, að þessi embætti yrðu sameinuð. Það er ekki til að kasta rýrð á þá nefnd, sem jeg á sjálfur sæti í, þó að jeg segi, að menn geti vænst meiri þekkingar í þessum efnum hjá mentmn. Og þetta sýnir ljóslega, að ekki er einhlítt að fara eftir autoriteti einhverrar nefndar, því að tvær nefndir geta lagt hvor á móti annari.
Jeg býst við, að hv. deildarmenn hafi lesið nál. minni hl. á þskj. 157, og veit jeg því ekki, hversu langt jeg á að fara út í að rekja ástæður mínar til þess, að jeg legst á móti þessu frv. Þó verð jeg að fara nokkrum orðum um þær.
Það er þá fyrst, hve ákaflega dýrmætar og merkilegar stofnanir þessi 2 söfn eru. Ef þau væru sett á uppboð og seld, gæti jeg trúað því, að þau reyndust miljóna virði, jafnvel tuga miljóna. Og þó verða þessi söfn ekki metin á þennan veg. Það er svo um marga hluti, að menn geta ekki fengið eins mikið fyrir þá eins og þykir varið í að eiga þá. Við þessi söfn þarf mikla natni og nákvæmni til þess að varðveita þau gegn skemdum. Það þarf að vanda mjög til geymslu þeirra og hafa ríkar gætur á, að handrit og bækur skemmist ekki eða drafni niður. Landsmenn verða að vita, að þar sjeu menn, sem lifa í þessum söfnum, bera þau fyrir brjósti og gæta þeirra með nákvæmni og alúð. Sje misbrestur á þessu, getur það valdið tjóni, sem ekki verður metið til launa yfirskjalavarðar, heldur getur verið óbætanlegt.
Annað aðalverk þeirra manna, sem stjórna söfnunum, er að sjá um, að þau geti orðið að sem mestu gagni. Og þegar kemur til þessa, get jeg ekki með nokkru móti verið sammála hæstv. stjórn og hv. meiri hl., að það geti farið vel úr hendi með því að svifta annað safnið yfirmanni sínum.
Jeg kannast ekki við að hafa notað of stór orð í nál. mínu. Það er ekki hneisulaust að hafa ekki sjerstakan yfirmann við skjalasafnið. Það er álitið sjálfsagt, að hvert menningarríki hafi ákveðnar stofnanir, er taka mætti upp í skilgreiningu á, hvað er menningarríki og hvað ekki ?
Og meðal þessara stofnana eru einmitt slík söfn: ríkisbókasafn, ríkisskjalasafn, þjóðmenjasafn o. s. frv. En með þessu frv. er í raun og veru verið að afnema skjalasafnið sem sjálfstæða stofnun og gera það að seli frá Landsbókasafninu.
Í þessu efni verður að vitna í það, sem ólygnast er, en það er reynslan. Við þjóðskjalasafnið hefir hvorttveggja verið reynt: að hafa sjerstakan yfirmann við það og láta það vera undir landsbókaverði. Í fyrstu var það undir stjórn landsbókavarðar. Fram undir aldamót var safnið eins og þroskalítið barn í reifum, fór ekki fram og lifði varla nema á pappírnum. En þegar sjerstakur yfirmaður var skipaður við safnið um aldamótin, skifti þegar um. Eftir að hafa verið fjórðung aldar undir stjórn eins og sama mannsins er það komið upp í 20–30 þús. nr. og orðið marga miljóna króna virði. Þetta hefir hafst upp úr launum þessa manns. En nú er sú ályktun dregin af þessari reynslu, að ekki sje lengur þörf á sjerstökum yfirmanni við safnið. Jeg veit ekki, hvernig á að fara að læra af reynslunni, ef það er gert á þennan hátt.
Það kynni að sýnast, að þörfin á skjalaverði sje ekki jafnbrýn sem áður sökum þess, að nú eru skjölin öll komin á einn stað, en þess er að gæta, að safnið er nú orðið allstórt. Og það er hrein og bein fjarstæða að halda, að öllu sje lokið, þó að búið sje að koma öllum þessum plöggum saman á einn stað. Eftir er að skrásetja mest af þeim, og er það afskaplega mikið og vandasamt starf og ómögulegt að inna það af hendi nema fyrir nákunnuga menn. Er fjarstæða að ætla landsbókaverði að gera þetta. Því má svara, að undirtyllurnar geti gert þetta. En þá er yfirmaðurinn ekki orðinn annað en „toppfígúra“, sem hefir undir sjer illa launaða menn. En slíkt er mjög skaðlegt, því með því vex ábyrgðarleysið.
Jeg skal ekki fara út í það, hve óskyld störf þessara tveggja manna eru, því að það hefi jeg og hv. þm. Dala. (BJ) áður sýnt fram á; en sannleikurinn er, að þau eru ekki skyld að öðru en því, að bæði eru í sama húsinu, en á því mun líka verða fljótlega breyting, því að landsbókasafninu veitir ekki af öllu húsnæðinu.
En öll innri skilyrðin eru gagnólík. Það þarf ekki aðeins að vera munur á þekkingu þessara manna, heldur og skapgerð (Karakter). Annar, landsbókavörðurinn, þarf að vera víðsýnn maður og „business“-maður. Hinn þarf framar öllu að vera einhæfur við sitt starf, „specialisti“, sem sekkur sjer niður í það. Hjer verður því að vera upplagsmunur, sem starfið eitt getur ekki skapað.
Með þessari sameiningu er því stofnað til ills eins, og er það von mín, að þingið feti í fótspor þingsins 1919 og hlaupi ekkert gönuskeið í þessu, sem seinna mundi þykja leiðindi og hneisa að.