03.04.1923
Neðri deild: 32. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í C-deild Alþingistíðinda. (1937)

17. mál, afnám yfirskjalavarðarembættisins við Þjóðskjalasafn Íslands

Forsætisráðherra (SE):

Jeg stend upp aðeins til þess að endurtaka það í þriðja skiftið, að hv. þm. (BJ) hefir margsýnt það hjer á þingi, að hann er á móti öllum sparnaði, og jeg er ekki smeykur við að segja þetta og því líkt honum og öðrum þingmönnum, því jeg er hjer ekki af nokkurs þingmanns náð.