05.04.1923
Neðri deild: 34. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í C-deild Alþingistíðinda. (1949)

79. mál, aukauppbót vegna sérstakrar dýrtíðar

Eiríkur Einarsson:

Það var ekki til þess að leggja með eða móti frv. að jeg tók til máls áðan, og svo er ekki enn. Það er aðeins samanburðurinn á kaupstöðunum og kauptúnunum.

Háttv. 3 þm. Reykv. (JÞ) tók það fram, að það væri til að ráða bót á mestu misfellunum, að þetta frv. er fram komið. Jeg fellst á, að það markmið er rjettmætt, ef það næðist. En jeg held bara, að mestu misfellurnar náist ekki af með þessu lagi. Þvert á móti hygg jeg, að aðrar stærri verði til, ef þetta er samþykt. Að mínu áliti einskorðast þeir, sem harðast verða úti, alls ekki við kaupstaðina; greinarmunur meðal þeirra, er búa í verslunarstöðum, kemur aðallega fram í öðru, og þá fyrst og fremst hvort embættismaðurinn nýtur grasnytjar eða ekki, hvort hann á hús eða ekki, eða hvort hann kann að njóta einhverra búsnota utan embættis o. s. frv. þetta verður alt að athugast, er nauðsyn manna í hinum ýmsu sjávarstöðum er borin saman, jafnframt því sem litið væri á afkomuskilyrðin á ýmsum stöðum við sjóinn, án tillits til þess, hvort um kaupstað eða kauptún er að ræða.

Þá er og það að athuga, að þótt t, d. einhver embættismaður, svo sem læknir, hafi bújörð til afnota, þá er einnig á það að líta, að síðustu árin hefir búskapur borið sig mjög illa, og er því naumast hægt að reikna slíkt til stórra hlunninda fyrir embættismenn í sveit. Hjer við bætist svo, að slíkur embættismaður, sem er störfum hlaðinn, á ilt með að veita búi sínu þá forsjá, sem þarf, og fer það eitt oft og tíðum með þá arðsvon af búskapnum, sem ella væri, og getur jafnvel valdið sjerstöku tapi á honum. Það er yfirleitt margt, sem taka verður hjer til greina. En þetta skal jeg játa, að tómthúsleiguliðarnir, sem verða að borga mjög háa húsaleigu, eru einna verst settir. En á því verður ekki ráðin veruleg almenn bót, þótt brtt. háttv. meiri hl. nái fram að ganga, vegna misfellna, sem þar eru á. Svo að kúfurinn á órjettinum færist aðeins til, en lækkar ekki.