14.04.1923
Efri deild: 40. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í C-deild Alþingistíðinda. (1984)

36. mál, húsaleiga í kaupstöðum landsins

Jónas Jónsson:

Það er aðeins smáathugasemd. Aðallega greinir á milli um tvö atriði: hvort það er bæjarmál eða landsmál og hvort málið er stórt eða smátt. Ef mjer fyndist þetta lítið mál, þá mundi jeg ekki fylgja því svo fast fram. Og ef hv. 4. landsk þm. (JM) fyndist það stórt, þá myndi hann væntanlega vilja athuga það betur.

Af orðum sama hv. þm. (JM) má ætla, að honum finnist þetta eingöngu bæjarmál. En jeg býst þó varla við, að honum finnist þinginu óleyfilegt að skifta sjer af því, hvernig bæjar- eða sveitarfjelögin ráða málum sínum, þegar um stórmál er að ræða. Enda er það oft gert, þegar svo stendur á. Má nefna dæmi þess frá vatnsorkulögunum. Ef vatn er virkjað af einu sveitarfjelagi í landi annarar sveitar, þá getur sú sveit, sem landið á, sýnt hinni svo mikið ranglæti, að ekki er viðunandi. Verður þá ríkisvaldið að grípa inn í, svo málið verður þjóðmál. Dæmi þessa er frá rafveitunni hjer í Reykjavík.

Aðalatriði þessa máls virðist ekki ná djúpt inn í hv. frsm. (JM), t. d. það, að bæjarstjórnin er alls ekki líkleg til að gera neitt, sem gagn er að, í þessu máli.

Viðvíkjandi því, að bærinn eigi að ráða sínum málum, þá má geta þess, að ekki er líklegt, að frv. um bæjargjöld, sem bæjarstjórnin lagði fyrir hv. Nd., komist gegnum þá deild. Sýnist þó bærinn mega vera sjálfráður um það, hvernig hann leggur óhjákvæmileg gjöld á bæjarbúa, hvort heldur með beinum sköttum eða eftir niðurjöfnun.

Þá kom fram hjá hv. frsm. (JM), að húsaleigan yrði að miðast við núverandi byggingarkostnað. Með því sýnir þm., að hann lítur á stundarhagnað húseigenda, en ekki á þjóðarþörfina.

Háttv. 4. landsk þm. (JM) hafði ekki skilið mig áðan, er jeg talaði um lækkun afurðanna. Jeg átti við útflutningsverð, en ekki við útsöluverð hjer í bænum, er jeg sagði, að fiskur hefði lækkað um helming, en kjöt um 3/4. Er því skiljanlegt, að framleiðendum veitist erfitt að borga það kaup, sem þolir húsaleiguna, sem er nærri eins há og hún varð hæst.

Það er kenning sósíalista og fleiri, að verði húsaleiga lækkuð niður fyrir núverandi byggingarverð, þá verði ekkert bygt. En sumir halda því fram, að þá verði meira bygt.

Þá er annað atriði, að þessir kumbaldar uppi í holtum eru aðeins fyrir eina fjölskyldu. Þar hefir hver bygt yfir sig og hefir enga leigjendur. Þeir biðu því engan skaða við takmörkun húsaleigu.

Viðvíkjandi húsaleigu á Ísafirði er það að segja, að þm. þess kjördæmis (JAJ) símaði til bæjarstjórnarinnar þar og spurði hana að því, hvort Ísfirðingar vildu fá heimildarlög. En þeir svöruðu því, að þeir vildu heldur þetta frv. og að það yrði að lögum. Því hefir þm. Ísfirðinga ekki borið fram frv. í þessa átt, að hann væntir þess, að þetta frv. verði að lögum.

Aðalatriðið er nú samt, eftir alt saman, ekki það, hvort þetta er bæjarmál eða landsmál, heldur hver nauðsyn það er atvinnuvegunum, að toppurinn sje stýfður af húsaleigunni. Það er ekkert á móti því, að dýr hús falli í verði, eins og alt annað, sem verður að lækka. Gömlu húsin standa í fullu gildi með 12% leigu, og því fremur, ef hámarkið yrði sett eitthvað hærra.

Ef skoðun þeirra manna, sem ekkert. vilja gera, sigrar, þá verður sennilega krafist að bæta upp laun lægst launuðu embættismannanna hjer í Reykjavík og máske víðar. Jeg átti nýlega tal við embættismann, sem hv. 4. landsk. þm. metur mikils, og álit hans var það, að þingið yrði að veita embættismönnum hjer, þeim sem eru leigjendur, stórt lán til að byggja yfir sig, ef frv. næði ekki fram að ganga.

Ef þetta frv. nær ekki fram að ganga, leiðir það að líkindum til þess, að ríkið verður að veita húsaleigustyrk til meiri hluta starfsmanna sinna.