18.04.1923
Efri deild: 43. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í C-deild Alþingistíðinda. (2019)

19. mál, vitabyggingar

Frsm. (Jón Magnússon):

Jeg held, að nefndinni og hæstv. atvrh. (KIJ) beri ákaflega lítið á milli. Nefndin telur vafasamt, að rjett sje að taka frá þinginu rjettinn til að ákveða í hvert sinn fjárframlögin til einstakra framkvæmda, eins og frv. gerir.

Takmörkun brtt. á þskj. 387 er ekki meira en svo heppileg. Oft gæti staðið svo á, að nauðsyn sje að verja meiru en 100 þús. kr. til vitabygginga. Auk þess gerir 3. gr. frv. ráð fyrir, að framkvæmdum þeim, sem ræðir um í frv., sje lokið á 12–16 árum. Tökum meðaltal, 14 ár, og nægja 100 þús. kr. árlega þá engan veginn. Aðalatriðið fyrir nefndinni er samt, að hún sjer ekki ástæðu til að samþykkja lög að sinni, ef þau eiga ekki að koma til framkvæmda fyrr en eftir 2–3 ár. Var fullfljótt ráðið að samþykkja samskonar lög um símamál og brúargerðir, og eru vítin til þess að varast þau. Jeg tel eðlilegast, að fjárveitinganefndir sjeu látnar fjalla um það í hvert skifti, hvernig fje skuli varið til framkvæmda, og mun nefndin þar í fullu samræmi við atvrh. (KIJ).