21.04.1923
Neðri deild: 47. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í C-deild Alþingistíðinda. (2072)
87. mál, samkomutími reglulegs Alþingis
Magnús Jónsson:
Mig langar til að segja fáein orð um þetta frv., enda þótt jeg hafi ekki búið mig jafnvandlega undir til andmæla eins og háttv. flm. (SvÓ) hafði gert til þess að sýna fram á kosti sumarþinga. Get jeg því ekki mætt honum eins vel og skyldi, til þess að sýna honum fram á hina mörgu ókosti þessa fyrirkomulags.
Hann lagði mikla áherslu á tafirnar að vetrinum og sagði, að þing gæti jafnvel fallið niður af þeim orsökum. Taldi þessi hv. þm. upp marga skipreka, þessu til sönnunar. Hann álítur líklega, að flestir eða allmargir þingmanna þekki ekki norðlenskt veður, og mundu þeir því telja sögurnar um hríðarnar þar meðal þjóðsagna. Jeg þekki nú þar t. d. allvel til og veit, að þar koma oft miklar hríðar og illar. En jeg sje ekki, að þetta komi málinu neitt við, og veit ekki til, að neinar sjerstakar ferðir sjeu farnar aðeins til þess að flytja þingmenn eða að skip hafi farist þess vegna.
Strandferðir verða hjer eftir einlægt fullkomnari eftir því sem tímar liða, og hefir það því engin áhrif, þó þm. þurfi að fara með þessum skipum. Slys eru einatt alvarleg, en það er allólíklegt, að þau slys geti komið fyrir, sem varpi skugga á vetrarþingin, og þó að það væri sorglegt, ef þm. færust á leið til þings, sje jeg ekki, að þeim sje neitt vandara um en öðrum að ferðast þannig á vetrum. En nú eru allar ferðir breyttar til batnaðar. Menn hafa nú betri skipakost til þessara ferða en áður, því menn hafa lært af reynslunni, að það þarf bæði betri skip og sjómenn til þessara ferða en annara. Læra menn einatt svo af reynslunni, að óhætt mun að gera ráð fyrir, að tafir og slys verði sjaldgæfari eftir en áður.
Öll skýrsla hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) um skipreka var málinu alveg óviðkomandi. Skipin farast ekki frekar, þótt þingmenn sjeu innanborðs. Jeg verð líka að segja það, að alt, sem hv. þm. sagði um töf af hafís, sje að mestu bygt á misskilningi. Þingmenn fara nú til þings í byrjun febrúarmánaðar, og er víst hafís sjaldan eða aldrei kominn um það leyti. Hann kemur ekki fyr en seinna, í mars og apríl, og eru meiri líkur til þess, að þingmenn tefjist af slíkum orsökum við heimförina að vorinu heldur en þegar þeir fara til þings. Jeg get jafnvel farið lengra og sagt, að meiri líkur sjeu fyrir því, að hafísinn verði til tafar í júnímánuði, ef sumarþing yrði, heldur en í febrúar. Er mjer t. d. minnisstætt, að vorið 1902 komust skip ekki suður um land allan júnímánuð, sökum hafístálmana. Hjer á jeg þó aðeins við hafisinn, en vitanlega er veðrið betra til ferðalaga að vorinu en í febrúar. Enn get jeg tekið það fram, að aldrei er erfiðara að ferðast um landið með hesta heldur en einmitt að vorinu. Það er því öðru nær en að erfiðleikarnir með ferðalögin sjeu eins mikil ástæða móti vetrarþingum og þessi hv. þm. vildi vera láta.
Þá kem jeg að kostnaðarhliðinni. Eitt af því, sem áður var haft á móti vetrarþingum, var það, að engin tæki voru í alþingishúsinu til ljósa og hitunar, og blæddi mönnum í augum að þurfa að setja slíkt upp. Nú er þessi ástæða ekki lengur fyrir hendi, því að hitunar- og ljósatæki eru komin í húsið, og engin ástæða til þess að láta það standa brúkunarlaust, enda nauðsynlegt að hita húsið upp hvort sem er. Húsið lá orðið undir skemdum, sökum þess, að það var aldrei hitað upp á vetrum, og var rakanum farið að slá inn gegnum veggina, þótt húsið væri vandað. Svo er nú, eins og kunnugt er, búið að hola háskólanum niður hjer, og þar sem að hita verður hann upp hvort sem er, þá munar ekki svo miklu, þótt heitu vatni sje hleypt hjer upp á efri hæðirnar. Þessi ástæða er því alveg horfin nú.
Hv. flm. (SvÓ) færði páskafríið sem eina ástæðu gegn vetrarþingunum. Það er nú heldur ljeleg ástæða. Fríið mun vera fjórir dagar, og sá tími fer vissulega ekki til ónýtis. Engin vanþörf á að fá dag og dag til þess að athuga það, sem fyrir liggur, og eins til þess að geta farið yfir eitthvað fleira en það, sem liggur fyrir daglega.
Í sambandi við kostnaðinn má minna á það, að fyrir flesta er dýrara að vera að heiman á sumrin en á veturna. Og þó að virðast megi svo með sumar stjettir, að þær megi fremur missa sumartímann til þingsetu, þá er slíkt undantekning, sem sannar aðalregluna, að óheppilegra og dýrara sje að hafa þing á sumrin. Mundi sá kostnaður nema meiru en hitun alþingishússins.
Þá heyrðist mjer háttv. þm. (SvÓ) segja, að þingmenn mundu vinna miklu betur og með meira fjöri að sumrinu. Hafi hann sagt það, þá er það þveröfugt við það, sem rjett er. Öll andleg vinna veitist miklu erfiðari að sumrinu. Skólar, t. d., eiga mjög erfitt með að starfa á vorin, eftir að sólin og góðviðrið er farið að lokka menn til útiveru. Og jeg ætla, að t. d. bændur mundu lítt una því að verá bundnir innan fjögra veggja tíma eftir tíma og dag eftir dag á þeim árstíma, sem þeir eru vanir að vinna úti. Og þeir, sem á þingi sitja áratugum saman, yrðu með þessu nálega sviftir þeirri ánægju lífsins, sem það er að njóta sumarblíðunnar.
Ein ástæðan, sem háttv. þm. (SvÓ) kom með gegn vetrarþingum, var sú, að ekki kæmi til mála að halda þing utan Reykjavíkur á vetrum. En það kemur ekki til mála að halda þing utan Reykjavíkur, hvorki sumar nje vetur, nema þá á Þingvöllum. Það er rjett, að jeg hefi nýlega haldið því fram í tímariti, að þingið ætti að heyja þar, og það er líka mín fasta sannfæring, að þar sje það best komið. En við þetta er það að athuga, að eins og með margt annað er ekki gott að koma fram með skynsemisrök fyrir því. Það þarf fyrst að vaxa upp í meðvitund þjóðarinnar. Hún þarf að finna, að á Þingvöllum er hennar helgi þingstaður, þar sem samkomustaður Alþingis verður að vera, og það án tillits til þess, hvort aðrir staðir, svo sem Reykjavík, eru heppilegir frá fjárhagslegu sjónarmiði sjeð. Það er eins og þegar maður leggur eitthvað í sölurnar fyrir ástvin sinn, að maður fer ekki að spyrja skynsemina, hvað hyggilegast sje.
Háttv. þm. (SvÓ) talaði um sumarþing í sambandi við 1000 ára hátíðina 1930, en jeg álít rjettast að halda þeirri hátíð utan við þetta mál. Vitanlega er rjett, að þingið láti fara fram hátíðlega athöfn á Þingvöllum 1930, því þótt líkur sjeu til þess, að Alþingi hafi ekki verið sett á stofn árið 930, þá munar það ekki svo miklu. En jeg skil ekki, hvernig þing ætti að vera háð þar það ár. Það þyrfti þá að vera búið að reisa þar stórbyggingu, því að það geta komið vond veður hjer á Suðurlandi, þótt að sumri sje, og líklegt, að þingskjölin kynnu að vökna hjá einhverjum háttv. þm., ef hafast ætti við í tjöldum, þ. e. a. s. ef nokkurt þingskjal yrði prentað þar, því til þess þyrfti þó að vera búið að setja þar niður prentsmiðju. — Nei, hátíðahöldin eiga að vera með alt öðru móti, og því rjettast að vera ekkert að blanda þeim inn í deilur um það, hvort þingið skuli haldið að sumri eða vetri til. Hitt er annað mál, að jeg er, eins og jeg hefi áður tekið fram, meðmæltur því, að þingið verði háð á Þingvöllum, þegar nægur undirbúningur hefir farið fram.
En þá þarf að byrja á alt öðru en því að færa þingið til sumarsins. Það er svo fljótgert.
Eina ástæðu, og líklega þá stærstu, fyrir því, að þing eigi ekki að heyja á vetrum, mintist háttv. þm. (SvÓ) ekki á. En það er, að þegar þing er háð svona snemma ársins er erfitt að gera áætlun um fjárhag næsta árs.
Á þinginu í fyrra kom fram frv. um að breyta fjárhagsári ríkissjóðs. Jeg var þá á móti frv., sökum þess að jeg taldi það ekki nægilega vel undirbúið, en jeg er alls ekki fjarri því, að fjárhagsárinu mætti breyta, og álit það heppilegra en að breyta samkomutíma þingsins. Hv. flm. gat um, að bændur ættu hægra með að sitja þing á sumrum en vetrum. Jeg játa það, að ef illa fer heima fyrir, þá er oft meira í húfi á vetrum. En ef bóndinn þarf að fá mann fyrir sig meðan hann situr á þingi, þá eru menn þó altaf dýrari á sumrin. Það er auðvitað slys, ef fje ferst að vetri til, en það mun alveg eins hafa komið fyrir, þó að bóndinn sje heima. Og aldrei hefi jeg heyrt um það, að slík slys hafi viljað til sökum þess að bóndinn hafi setið á þingi. Það eru líka fleiri sem sitja á þingi en bændur, og jeg ætla, að hvaða störfum sem þingmaðurinn gegnir, þá muni í flestum tilfellum vera dýrara fyrir hann, að þing sje haldið að sumrinu. Eina stjett landsins, sem verður hart úti með vetrarþing, eru kennararnir, nema þá helst í Reykjavík. Utan Reykjavíkur eru þeir máske alveg útilokaðir frá þingsetu. Jeg hefi nú minst á flest, sem hv. flm. sagði máli sínu til stuðnings. En jeg held, að óþarfahringl með samkomutíma þingsins sje ekki af því góða. Menn mundu fljótt komast að raun um ókostina, sem sumarþingunum fylgdu, og breyta svo um aftur. Og þó að stjórnarskráin heimili, að breyta megi samkomutímanum með almennum lögum, þá hefir það alls ekki verið meiningin, að alt af væri verið að hringla með það.