24.03.1923
Efri deild: 26. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í C-deild Alþingistíðinda. (2081)

102. mál, bankaráð Íslands

Flm. (Jónas Jónsson):

Þó ekki sje beint til andsvara, þá vil jeg þó gera fáeina aths. við ræðu hv. 4. landsk. þm. (JM).

Það var ekki rjett, sem hv. þm. (JM) tók fram, að ekki gæti verið nema um Landsbankann einan að ræða, því hið rjetta er, að það yrðu fleiri, sem nytu góðs af stofnun þessa bankaráðs. Hjer er bæði um Landsbankann og veðdeildina að ræða, sem með lögum er breytt í sjerstakan banka, þó enn sje ekki komið til framkvæmda, vegna lömunar. Er þó hafinn undirbúningur um, að þessi lög geti komið til framkvæmda, og verða þá bankarnir tveir.

Þá er einnig sennilegt, að Íslandsbanki myndi skjótt koma undir þetta sama bankaráð. Jeg hefi það frá manni, mjög kunnugum Íslandsbanka, sem einnig er kunnugur erlendu hluthöfunum, að þeir telji það bankanum miklu hagkvæmara að hafa innlent bankaráð, og þá að líkindum skipað á svipaðan hátt og hjer segir. Að vísu er þetta ekki beint sönnunargagn, þar sem jeg tel mjer eigi rjett að skýra frá nafni þessa manns, en það er þó eigi að síður satt.

Það er engin sönnun í þessu máli, þótt bankaráð Íslandsbanka hafi eigi reynst vel á undanförnum árum. Að það gerði það ekki, lá í því, að frá þingsins hálfu var svo frá því gengið, að það varð fremur bitlingur heldur en til að gera gagn, og valið fjell oft þannig, að af því hefir ekki verið mikils að vænta.

Nú hefir það þó starfað mikið síðustu mánuðina. Að vísu er mjer ekki kunnugt, að eftir það liggi mikið nýtilegt, en það hefir sem sagt lagt sig fram að halda fundi um eitthvað.

Alt öðruvísi yrði þessu háttað en undanfarin ár, ef bankaráðið væri skipað fulltrúum atvinnuveganna, völdum af þeim sjálfum, og þá þeim mönnum, er mest traust hefðu innan hverrar atvinnugreinar, heldur en þegar bankaráðið hefir verið valið eftir hverfulleik kosninganna hjer á þinginu.

Tilgangur frv. er sá, að bankarnir fái, þegar þeim fjölgar, sameiginlegan grundvöll til að vinna á og sameiginlegan stað, sem bankastjórnirnar gætu komið saman og væru jafnvel skyldugar til að koma saman á, til að vinna að sameiginlegum hagsmunum bankanna og atvinnuveganna og skiftu verkum milli lánsstofnananna.

Það mun óhætt að fullyrða, að aðalbankarnir hjer hafa verið mjög svo ókunnir hag og viðskiftum hvor annars. Þannig gat maður komið í annan bankann og beðið þar um lán án þess að bankinn hefði hugmynd um, hvernig hagur mannsins stóð hjá hinum bankanum. Er slíkt ástand mjög óheppilegt í litlu landi, sem hefir mjög hættulega atvinnuvegi. Sameiginlegt bankaráð myndi koma í veg fyrir slíka hættu.

Viðvíkjandi sparisjóðunum yrði þetta máske ekki nægileg umbót. Ófært er, að ekkert eftirlit sje haft með þeim. En að skipa til þess fastan mann gæti líka orðið miður heppilegt; já, máske af sömu ástæðu og drottningin í Svíþjóð, sem ekki vildi giftast; hún hjelt, að hún myndi ef til vill fæða son, sem ekki yrði góður kóngur. Í okkar litla þjóðfjelagi er erfitt að fá mann, sem bæði er starfi sínu vaxinn og menn bera líka traust til. Er hættulegt að setja fastan mann í slíka stöðu undirbúningslaust, ef valið skyldi mishepnast.

Betra myndi vera, að bankaráðið fæli trúnaðarmanni sínum í bili slíkt eftirlit. Fengist þá reynsla fyrir manni og árangri af starfinu, án þess að festur væri maður til þess.

Um sjerstakan bankaeftirlitsmann er það að segja, að naumast myndi hann til þess fallinn að ferðast milli sparisjóðanna. Til þess myndi sennilega valinn eldri maður, sem óhægt ætti með ferðalög um landið á öllum tímum árs.