28.04.1923
Efri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í C-deild Alþingistíðinda. (2084)

102. mál, bankaráð Íslands

Frsm. minni hl. (Björn Kristjánsson):

Það greinir ekki mikið á milli meiri og minni hluta nefndarinnar, því hvorugur nefndarhlutinn vill leggja til, að frv. sje samþykt.

Það greinir aðeins á um orðalag dagskrárinnar, því eigi kemur ljóst fram, hvort meiri hlutinn ætlast til, að stjórnin byggi till. sínar eða ekki á grundvelli frv., sem virðist vera hreinn „kommunismi“.

Minni hl. vildi taka hreint af skarið um það, að hann vildi ekki, að stjórnin bygði væntanlegar till. sínar á þeim grundvelli.

Minni hl. vill því annaðhvort, að frv. verði felt eða að því verði vísað til stjórnarinnar, og þá bygt á þeim bendingum, sem koma fram í áliti minni hlutans.

En af því svo getur farið, að till. meiri og minni hluta nefndarinnar falli, þá er ekki hægt að komast hjá að skýra dálítið frv. greinarnar. Og er það því nauðsynlegra, sem frv. byggist á nýju fyrirkomulagi, sem sje ráðstjórnarfyrirkomulagi. Og liggur því næst að athuga tilgang og efni 1. gr.

Þar er gert ráð fyrir að skipa 5 manna bankaráð, og er þar sagt, að fjármálaráðherrann sje sjálfkjörinn formaður. Eigi verður sjeð, hvaða þýðingu það á að hafa, að hann sje sjálfkjörinn formaður, því hann á að mæta í bankaráðinu sem óbreyttur bankaráðsmaður, með einu atkvæði eins og hinir, og án frekari ábyrgðar en hver hinna. (JJ.: Er það núna í Íslandsbanka?) — En með því virðist alt eftirlitsvaldið og öll ábyrgðin af eftirlitinu vera dregin úr höndum þings og stjórnar um alveg óákveðinn tíma, því eigi er þess getið í frv., til hve langs tíma kosning bankaráðsins eiga að gilda.

Það lítur því svo út, að þetta eigi að vera lífstíðarstarf.

Hina 4 bankaráðsmennina á að velja þannig, að samband kaupmanna á að velja einn, samband verkamanna einn, samband kaupfjelaganna einn og Búnaðarfjelagið einn. Og þessir 4 menn eiga ekki að vera ráðgefandi menn, heldur geta þeir haft alt valdið, hvað sem fjármálaráðherra segir.

Svo virðist vera fyrir sjeð í frv. þessu, að kommunistar verði í meiri hluta í bankaráðinu, og er ekki óliklegt, að það sje af þeim rótum runnið, að t. d. samband verkamanna er sjálfkjörið í bankaráðið, en Fiskifjelag Íslands eða sjómannastjettin útilokuð frá því, sem þó leggur bönkunum til langmestan hlutann af öllum viðskiftum þeirra.

Verkamannasambandið eða verkamenn hafa, eins og kunnugt er, sáralítinn sjálfstæðan atvinnurekstur.

Þetta ætti þá að vera nóg um 1. gr.

Í 2. gr. er ákveðið, að bankaráðið eigi að halda „einn fund á viku, og oftar, ef þörf þykir“. Og það á að gerast endurgjaldslaust.

Hefði slík uppástunga komið fram fyrir 50–100 árum, þá hefði hún ef til vill átt við, en ekki nú.

Nú vinna menn ekki umfangsmikil störf fyrir ekki neitt. Og eigi er bankaráðinu ætluð nein „kritisk“ endurskoðun, nje endurskoðun yfir höfuð, sem þó er aðalverkefni bankaráða í heiminum. (JJ: Hefir það verið í Íslandsbanka?) Heimurinn er stærri en Íslandsbanki og Ísland. (JJ: Er þá Íslandsbanki ekki í heiminum?).

Um 3. gr. skal jeg vera fáorður, en vísa í nál. Þó vil jeg geta þess, að þar sem bankaráðið á ekki að framkvæma neina „kritiska“ endurskoðun, þá veit jeg ekki til hvers það ákvæði er sett inn í þessa grein, að bankaráðið eigi að hafa „frjálsari aðgang, hve nær sem er, að öllum skjölum og bókum bankans.“

Það veitir bankaráðinu aðeins greiðan aðgang að því að geta hnýst inn í viðskifti einstakra manna í bönkunum; aðra þýðingu getur það tæplega haft.

Eflaust mundi það verða nokkuð vafningasamt að leggja bankaráð Íslandsbanka niður, og láta þetta nýja bankaráð koma í þess stað.