28.04.1923
Efri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í C-deild Alþingistíðinda. (2085)
102. mál, bankaráð Íslands
Forsætisráðherra (SE):
Jeg vil aðeins minna á það, að komið hefir fram áður í umr., að stjórnin myndi hugsa sjer að koma fram með frv. um stofnun endurskoðaraembættis. Stjórnin býst nú við að fá allshn. Nd. til að bera fram frv. um þetta, og vona jeg, að það nái samþykki deildanna. Geri jeg ráð fyrir, að frv. þetta komi á morgun.