28.03.1923
Neðri deild: 31. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í C-deild Alþingistíðinda. (2103)

61. mál, samvinnufélög

Björn Hallsson:

Það mætti kannske segja, að óþarft væri að ræða þetta mál mikið, því atkvæðagreiðslan mun lítið breytast fyrir því, fremur venja er til. En úr því að málið er komið á dagskrá á annað borð, ætla jeg að segja um það örfá orð, til viðbótar því, sem. hv. frsm. minni hl. (GunnS) tók fram í framsöguræðu sinni. Jeg ætla að ræða um frv. eins og það liggur hjer fyrir og gera sem minsta útúrdúra. Jafnframt vil jeg taka það fram, að jeg mun ekki taka hjer þátt í umræðum, og þó síður innleiða þær, um árásir, sem flugrit eitt gerði á samvinnufjelögin síðastliðið haust, illu heilli. Læt jeg hlutaðeigendur um þær deilur og tel ekki rjett, fyrir mitt leyti, að fara út í þá sálma hjer. Enda gefur frv. þetta í raun og veru ekki tilefni til þess.

Jeg skal svo byrja á nokkrum atriðum, sem ræða hv. þm. Mýra. (PÞ) gaf tilefni til. Hann mintist fyrst og fremst á það, að hann skildi ekki afstöðu okkar sem samvinnumanna, þegar við værum á móti máli eins og þessu. Hann sagði þetta einnig út frá þeirri fullyrðingu sinni, að hjer væri ekki um að ræða neina breytingu á samvinnulögunum. En þetta er alveg rangt, hjer er einmitt farið fram á að breyta lögunum. Jeg er á móti þessari breytingu af því, að jeg þori ekki að breyta lögunum nú sem stendur í þá átt að lina á ábyrgðinni, vegna lánstrausts Sambandsins og kaupfjelaganna yfirleitt. Getur öll linun í þá átt orðið til þess að spilla fyrir fjelögunum nú sem stendur, þar sem öll meðul, leyfileg og jafnvel óleyfileg eru nú notuð til þess að koma þeim fyrir kattarnef. Þetta er bein breyting á lögunum, þar sem farið er fram á, að ábyrgðin þurfi ekki að gilda nema innan hverrar deildar. Getur eftir því heilt fjelag leyst upp í jafnmörg fjelög og deildir þess eru. Ákvæðinu um ábyrgðirnar hefir verið haldið mjög á lofti í árásum þeim, sem nú upp á siðkastið hafa verið gerðar á Sambandið og samvinnuhreyfinguna.

Jeg ætla ekki neitt að draga taum ótakmörkuðu ábyrgðarinnar milli fjelaganna, sem í Sambandinu eru. Jeg er henni ekki hlyntur, eins og hún er. En nú sem stendur sje jeg ekki fært að lina á henni. Þessi skoðun á ábyrgðum er eldri hjá mjer og mörgum öðrum samvinnumönnum en flugrit það, sem gefið var út í haust um þetta efni. Var þetta á dagskrá samvinnumanna áfundi þeirra í vor og myndi að líkindum hafa komist hljóðalaust fram, ef þessi árás á lánstraust Sambandsins hefði ekki komið fram. En það gefur að skilja, að áríðandi er, að lánardrottnar kaupfjelaganna sjeu rólegir og segi ekki upp skuldum, svo mikill hluti landsmanna sem eru í kaupfjelögunum. Er því nauðugur einn kostur, að fara varlega í allar breytingar á samvinnulögunum, vegna lánsstofnananna og hins erfiða tíma, sem yfir stendur. En þegar jeg tala um erfiðleika í þessu sambandi, er þar í rauninni ekki um annað eða meira að ræða en allir aðrir hafa átt við að búa í verslun og viðskiftum á síðustu árum. Og þar sem talað er um það, að kaupfjelögin hafi safnað skuldum og komið á skuldaverslun og brotið þar með grundvallarstefnu sína, þá, að versla skuldlaust, þá er þetta líka rangfært og snúið á verra veg. Fjelögin hafa lítið rekstrarfje, nema með ábyrgðum fjelagsmanna, en verða að sæta bankalánum, og það eitt er það, sem um er að ræða í þessu sambandi, og ætti það ekki að vera hættulegra eða meiri frágangssök fyrir kaupfjelögin en aðra. Hins vegar hafa nú allir landsmenn, eða flestir, tapað á þessum seinustu og verstu tímum, og er það ekki neitt undarlegt, þótt fjelögin hafi orðið fyrir þessu líka og safnað skuldum. En vonandi fer nú að rætast úr aftur, og bólar meira að segja nú fyrir því, og komast þá fjelögin á rjettan kjöl aftur, og að því verður að stefna af öllum mætti.

Þótt svo færi ekki, sem þó er líklegt, að fleiri fjelög fetuðu hjer í fótspor Kaupfjelags Borgfirðinga, þá væri samt með þessu veitt heimild til slíkrar undanþágu, en það eitt myndi undir eins hafa traustveikjandi áhrif og stuðla að því að losa um kaupfjelagsskapinn yfirleitt.

Jeg skil vel ástæður þess háttv. þm., sem flytur frv. Hann hefir ekki verið í Sambandinu og vill ekki vera þar, en óskar hins vegar eftir að fá að njóta þeirra hlunninda og rjettinda, sem samvinnulögin veita. En það liggur við að mig furði á þessari stygð háttv. þm. við samábyrgð innanfjelags. Jeg veit ekki til, að Kaupfjelag Borgfirðinga hafi nokkurn tíma haft sameiginlega ábyrgð innan fjelagsins, og þó er jeg ekki viss um, að hagur þess sje yfirleitt nokkuð betri en hinna, sem henni eru bundin. Og hvað bankana áhrærir, þá veit jeg ekki til þess, að þeir hafi enn þá tapað neitt á Sambandinu eða öðrum kaupfjelögum með fjelagslegri samábyrgð, og væri betur, að sama mætti segja um suma stórkaupmennina og „spekúlantana“ og ýmsa, sem við þá hafa skift.

Hv. flm. (PÞ) hneykslaðist á því, er minni hl. tekur fram í nál., að hann telji æskilegast að sameiginlega ábyrgðin sje takmörkuð í framtíðinni, en ekki að svo stöddu. Hún er ekkert hneykslunarefni. Við viljum sæta heilbrigðum tíma og ástandi til að kippa þessu í rjett lag, en ekki hrapa að því á óhentugum tíma. Það er aðeins þetta, sem skilur á milli, að við viljum bíða betri tíma og taka allar breytingar á samvinnulögunum fyrir í einu. Þess vegna verð jeg að vera á móti þessu frv. nú.