28.03.1923
Neðri deild: 31. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í C-deild Alþingistíðinda. (2105)

61. mál, samvinnufélög

Pjetur Ottesen:

Jeg skal ekki lengja mikið umr. nje blanda mjer í þær deilur, sem hjer hafa orðið milli hv. flm. (PÞ) annars vegar og hins vegar hv. frsm. minni hl. (GunnS) og fleiri, sem mæla gegn frv. Háttv. flm. hefir svarað til fulls þeim mótbárum, sem fram hafa komið, og þá um leið ræðu háttv. síðasta ræðumanns, sent var aðeins endurtekning fyrri ræðu hans. Jeg þarf því ekki að bæta neinu við málsvörnina, en ætla einungis að segja nokkur orð um málið alment.

Frv. þetta er borið fram af því, að kaupfjelagsmenn í Borgarfjarðarhjeraði telja þennan samvinnugrundvöll hagkvæmastan og að á þennan hátt náist best það takmark að grundvalla og efla fjárhagslegt sjálfstæði fjelagsmanna. Með þessu — að hafa sameiginlega ábyrgð innan hverrar deildar, en að ábyrgðin sje ekki víðtækari — líta þeir svo á, að girt sje fyrir, að hver deild um sig stofni til stærri skuldar á ári hverju en hún er borgunarmaður fyrir. Innan þessa þrönga hrings eða takmarka hverrar deildar þekkir hver annan og hvers annars fjárhag og gjaldþolsmöguleika. Þeir ganga að því vitandi vits, að hver beri þar ábyrgð fyrir annan, og geta því ekki syndgað upp á náðina í skjóli þess, að aðrir úti í frá beri ábyrgðina jafnframt þeim. Þetta fyrirkomulag girðir, svo vel sem unt er, fyrir þennan ljettúðaranda og siðferðisbrest, sem hefir bólað svo mjög á á seinni tímum, að stofna til skulda og kæra sig kollóttan um, hvort skuldin verði endurgreidd, reyna bara að varpa skuldum sínum ásamt áhyggjunum yfir á annara herðar. Með þessu er og fyrirbygt, eins vel og unt er, að deildirnar komist í fjárþrot eða vanskil við fjelagið, sem andstæðingar frv. eru að ota sem vopni gegn þessari breytingu, til að vekja tortryggni á henni. Tel jeg og hjer með svarað fyrirspurn hv. þm. S.-Þ. (IngB) um það, hvað vinnist með þessu frv.

Borgfirðingar byggja ekki trú sína á þessu fyrirkomulagi á tómum hugarburði eða getgátum. Þeir byggja hana á margra ára reynslu. Kaupfjelag Borgfirðinga hefir nefnilega lifað öll sín uppgangs- og blómaár undir þessu fyrirkomulagi og varð þess aldrei vart, að neinn hörgull væri á lánstrausti, hvorki hjá bönkum nje útlendum viðskiftamönnum. En síðan slept var tökum í fjelaginu á þessu öryggisfyrirkomulagi, hefir tekið að halla undan fæti hjá fjelaginu.

Með því að þetta hefir nú gefist svo Borgfirðingum, þá leita þeir nú til löggjafarvaldsins, í trausti þess, að það sje fúst að greiða götu alls, sem eykur velmegan þjóðfjelagsins og tryggir einstaklingum þess fjárhagslegt sjálfstæði. Þeir óska eftir því, að þeim sje leyft að njóta þeirra hlunninda, sem samvinnufjelagalögin veita, þótt þeir starfi á þessum grundvelli, sem þeim hefir reynst heppilegastur og er hugþekkastur og þeir telja affarasælastan fyrir viðrjetting efnalegs sjálfstæðis og hagsæld hjeraðsins. Og jeg verð að vænta þess, að háttv. Alþingi láti ekki á sannast, að það misskilji hlutverk sitt, sem það gerði, ef það brigði nú fæti fyrir frv. þetta. Því með þessu frv. er ekki gengið á rjett nokkurs manns eða fjelags í landinu eða beitt neinni kúgun eða valdboði gegn þeim, er hafa vilja það fyrirkomulag, sem nú er. Þetta fjelag telur bara þetta fyrirkomulag best og hagkvæmast og æskir því að fá að haga sjer samkvæmt því. Svo yrði þá líka um önnur fjelög, sem kynnu að hallast á sömu sveifina, en það mundu þau ekki gera, nema þau sæu sjer betur borgið á þann hátt. Þau, sem aftur á móti vildu byggja áfram á sama grundvelli, sem nú er, og hafa trú á honum, mundu í engu hvika þar frá. Jeg get því ekki betur sjeð en að sá ótti, sem hjer kemur fram hjá mönnum við það, að þetta mundi valda svo miklu losi á fjelagsskapnum yfir höfuð og veikja hann, sje með öllu ástæðulaus. Það virðist yfirleitt lítil ástæða til að taka sjálfsákvörðunarrjett af mönnum í slíkum efnum, sem þessum, eða vilja kaupa menn til að ganga undir ákvæði, sem þeir telja starfsemi sinni skaðleg, enda hefir sjaldnast gefist vel, ef svo hefir verið gert.

Jeg vil svo að síðustu geta þess, að jeg tel ástæðulaust og allsóviðeigandi af hv. frsm. minni hl. (GunnS) að vera að blanda inn í þessar umr. þeim ritdeilum, sem urðu um kaupfjelagsskapinn í blöðum og flugritum á síðastliðnu hausti. Það er fjarri því, að þetta frv. sje fram komið af illum hug til kaupfjelagsskaparins, eins og háttv. þm. var nú hálft um hálft að dylgja með, heldur er það, eins og áður hefir verið fram tekið, komið fram af því, að Borgfirðingar telja þennan samvinnugrundvöll tryggastan og bestan. Þetta eitt, að reynsla Borgfirðinga hefir sýnt, að með þessu fyrirkomulagi hefir verið best trygður fjárhagur fjelagsins, og þá um leið lánstraust þess, bæði út á við og inn á við, það eitt er nægilegt til að sýna rjettmæti þessarar breytingar og hvað þær ástæður, sem andstaðan gegn frv. eru bygðar á, eru nauða veigalitlar og lítils virði.