28.03.1923
Neðri deild: 31. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í C-deild Alþingistíðinda. (2110)

61. mál, samvinnufélög

Sveinn Ólafsson:

Jeg skal ekki fara inn á mjög breiðar brautir með mál þetta; en jeg get ekki stilt mig um að minnast á nokkur atriði, sem fram hafa komið hjá stuðningsmönnum þessa frv. á þskj. 91. Jeg skal þegar taka fram þá skoðun mína, að hafi nokkurn tíma komið fram vanhugsað frv. í þessari deild, þá er þetta frv. vanhugsað og varhugavert. Með því á jeg alls ekki við það, að háttv. flm. gangi nokkuð annað en gott til að flytja þetta. Jeg veit vel og trúi því, að þeir líta svo á, sem þetta sje kaupfjelagsstarfseminni hættulaust. En jeg verð að hafa alt aðra skoðun á því. Jeg álít, að það væri slys, ef frv. næði fram að ganga hjer í deildinni.

Hjer er hreint og beint vegið að Sambandi Ísl. samvinnufjelaga, og það leynir sjer ekki, að stefna þessa frv. er einn ávöxtur þeirrar sniðugu (jeg vil ekki segja lævíslegu) tilraunar, sem gerð var á síðasta hausti af óvildarmönnum Sambandsins til þess að ræna það trausti og áliti utan lands og innan. En þeir ávextir eiga engan rjett á sjer og ættu ekki að þroskast lengur eða hljóta mikinn byr, síst úr þessari átt.

Málsvörn þeirra manna, sem nú vilja styðja frv., er mjer harla óskiljanleg. Á jeg þar eigi síst við hv. frsm. meiri hl. (MG). Í ræðu hans komu fram tvær óbeinar spurningar, báðar með nokkru málsfærslusniði. Önnur var sú, hví Kaupfjelag Borgfirðinga mætti ekki fá þessa undanþágu, og hin var sú, hvers vegna ætti að refsa þeim, sem ekki vildu gangast undir samvinnulögin. Hjer er því til að svara, að Borgfirðingum er opinn vegur til þess að losna við alla samábyrgð, á sama hátt sem mjer og öðrum, sem ekki eru í kaupfjelagsskap og njóta þó hlunninda af samvinnutækjum og samstarfi — öðru en ábyrgð Sambandsins. Þeir geta þá notið síns takmarkaða fjelagsskapar eins og þeim sýnist og skift við hvern heildsala, sem vera vill, jafnvel Sambandið, ef þeim semur; en vitanlega geta þeir ekki notað lánstraust þess. Hitt má öllum vera ljóst, að ef undanþágan er veitt og frv. þetta verður að lögum, þá stefnir það að því að lama Sambandið. Því að lánstraust þess og geta byggist á þeirri samábyrgð, sem hin einstöku fjelög veita því. Og ef allar deildir þess fylgdu dæmi Borgfirðinga og losuðu sig við samábyrgðina, þá væri bersýnilega lokið starfi þess.

Um sambandslögin er það svo, að þeir, sem njóta þeirra rjettinda, sem þau veita, verða einnig að gangast undir skuldbindingarnar. Þau hlunnindi eru aðeins fáanleg, ef teknar eru tilsvarandi skuldbindingar. Þess vegna er það engin refsing, heldur rjettmæt og eðlileg ákvörðun, að neita Borgfirðingum um þessa breytingu á samvinnulögunum.

Hv. þm. Borgf. (PO) kveður sjer hljóðs, og mun jeg eiga von andmæla. En jeg verð þá um leið að biðja hann að gera frekari grein fyrir kenningum þeim, sem hann í fyrri ræðu sinni bar fram, svo sem því, hvernig einstök kaupfjelagsdeild geti orðið trygð gegn vanskilum með því einu, að losna við samábyrgð við aðrar deildir og fjelög. Hitt væri mjer og ánægja að vita, hvernig skilja beri þá kenningu hans, að þau siðferðilegu áhrif af því að losna við samábyrgðina og fá þessa margumræddu undanþágu geti frelsað Kaupfjelag Borgfirðinga frá öllu illu.

Það var svo að heyra á hv. þm. Borgf. (PO), sem hann teldi fjárhagslegt sjálfstæði kaupfjelagsins trygt með því einu að fá þessa ívilnun, rjett eins og ekki gætu verið óskilamenn í kaupfjelagi, þótt það fengi undanþáguna, sem frv. fer fram á. Allar þessar kenningar virðast mjer vera innantóm slagorð frá hv. þm. (PO).

Mjer þykir til furðanlega mikils mælst í fundarsamþykt Borgfirðinga, þeirri sem prentuð er í greinargerðfrv., þar sem farið er fram á að njóta allra þeirra hlunninda, sem samvinnufjelagalögin veita þeim, er undir samábyrgðina ganga, og vilja þó engan þátt eiga í að bera skyldurnar eða kvaðirnar. Þessi hlunnindi eru langtum meiri en ívilnun sú um útsvar, sem samvinnulögin áskilja fjelögunum. Þau eru engu síður fólgin í lánstrausti því, sem Sambandið getur veitt og veitir fjelögum með samábyrgð.