28.03.1923
Neðri deild: 31. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í C-deild Alþingistíðinda. (2112)
61. mál, samvinnufélög
Pjetur Ottesen:
Jeg ætla einungis, að gera stutta athugasemd, enda hefi jeg ekki leyfi til annars nje meira, þar sem jeg hefi talað tvisvar og er því dauður. Hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) gerði harða árás á frv., og ætla jeg, að það hafi verið af yfirlögðu ráði gert að láta þá atlögu bíða til síðustu stundar, í von um að geta fremur haft áhrif á atkvæðagreiðsluna. Að minsta kosti er þessi aðferð mjög í samræmi við alþekt skapferli og lyndiseinkunn þessa þingmanns.
Hann vildi ekkert gera úr þeirri tryggingu, sem fæst með því fyrirkomulagi, er við viljum tryggja með frv., og mátti lesa út úr ræðu hans þá grundvallarhugsun, að því meiri og víðtækari, sem samábyrgðin er, þess meira sje fjárhagslegt sjálfstæði fjelaganna. Ætla jeg, að ekki sje gott að gera honum skiljanlega skoðun mína og annara, sem hugsa alveg gagnstætt honum í þessum efnum, nje að hann eigi gott með að setja sig inn í hugsanir þeirra manna. Það þýðir vitanlega ekkert að bera nein rök á borð fyrir háttv. þm. í þessu máli, eða benda á ótvíræða reynslu í þessu efni. Það er nú einu sinni svona; þingm. (SvÓ) sjer ekkert nema samábyrgðina, ótakmarkaða samábyrgð, og hann lítur svo á, að án hennar sjeu öll viðskifti og alt viðskiftalíf dauðadæmt.
Það þýðir vitanlega ekkert að vera að endurtaka þann höfuðókost hinnar ótakmörkuðu samábyrgðar, endurtaka það í því skyni, að þingmaðurinn taki sjer það til inntekta, — að með því er þeim mönnum, sem hafa tilhneigingu til þess að stofna til skuldar af ráðleysi eða með þeim ásetningi, að geta losnað við þær á þann hátt að koma þeim yfir á aðra, gert mun hægra fyrir en ella með að fara slíku fram. Hv. þm. (SvÓ) telur þetta víst eitt af kostunum og meðmæli með fyrirkomulaginu.
Þeim ummælum hv. þm. (SvÓ), að með þessu frv. væri verið að vega að Sambandinu og að það sje ávöxtur þeirra árása, sem gerðar hafi verið á kaupfjelagsskapinn á síðastl. hausti, svaraði hv. þm. (SvÓ) nú reyndar sjálfur, með því að segja, að okkur flutningsm. frv. gengi ekki annað en gott til með flutning þessa máls. Mjer nægir því alveg að nota þessi hans eigin orð til að slá niður þá staðhæfingu, að með þeim sje verið að vega að Sambandinu og að það standi að nokkru leyti í sambandi við fyrnefndar deilur frá síðastl. hausti.
Svo var að heyra á ræðu hans, sem um enga samábyrgð væri að ræða innan Kaupfjelags Borgfirðinga. Þetta segir hann þrátt fyrir það, þó því hafi verið marglýst yfir hjer í háttv. deild, að svo er, enda beinlínis gert ráð fyrir því í frv., þar sem talað er um samábyrgð innan hverrar deildar.
Jeg ætla ekki að fara frekar út í þetta. Hv. deildarmenn munu yfirleitt skilja ofurvel hvað hjer er um að ræða, en jeg býst við, að það sje erfitt að opna augu hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) fyrir því rjetta í þessu máli, því hans motto er seint og snemma: því meiri samábyrgð, því betri verslun.
Þykir mjer svo að lokum vel við eigandi að snúa þeim ummælum, sem hann hafði um þetta frv. í upphafi ræðu sinnar, upp á hans eigin ræðu, með því að segja, að það sje alveg áreiðanlega sú vanhugsaðasta ræða, sem flutt hefir verið hjer á þingi.