14.04.1923
Neðri deild: 42. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í C-deild Alþingistíðinda. (2119)

61. mál, samvinnufélög

Pjetur Þórðarson:

Jeg vil aðeins beina athygli hv. 1. þm. Reykv. (JakM) að því, að Borgfirðingar hafa lengi starfað í fjelagskap með takmarkaðri ábyrgð, þannig, að lánardrottnar höfðu trygging í eignum fjelagsins og ábyrgð deildanna gagnvart fjelaginu. Fjelagið vill nú snúa sjer aftur að þessu fyrirkomulagi, án þess þó að missa af þeim hlunnindum, sem samvinnulögin veita. Um annað er ekki að ræða. Jeg skal viðurkenna, að jeg fæ ekki skilið, hvað þeim mönnum, sem ekki vildu upphaflega innleiða þetta fyrirkomulag, sem trygði fjelögunum sjerstök rjettindi og skyldur, hvað þeim getur gengið til þess að meina fjelaginu þessa meinlausu undanþágu, fjelagi, sem lengi hefir starfað með takmarkaðri ábyrgð. Jeg sje heldur ekki, hvernig það ætti að geta verið hættulegt fyrir kaupfjelagsskapinn yfirleitt, þar sem það er þó vitanlegt, að undanþágan er í lögunum veitt framleiðslufjelögum o. s. frv. Það tekur of langan tíma að skýra frá því, hvers vegna Kaupfjelagi Borgfirðinga er þetta svona nauðsynlegt, en jeg veit, að margir hv. þm. muni trúa mjer til þess að halda þessu fram aðeins vegna þess, að á því veltur mikið fyrir fjelagið, eins og nú er komið.