14.04.1923
Neðri deild: 42. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í C-deild Alþingistíðinda. (2122)
61. mál, samvinnufélög
Pjetur Ottesen:
Jeg heyri það á mönnum, að þeir vilja forðast að vekja deilur eða árangurslausar þrætur um þetta mál, og skal jeg heldur ekki verða til að brjóta þá reglu.
Mótmælin, sem fram komu gegn frv. því, sem hjer ræðir um, við 2. umr., virtust nær eingöngu bygð á óttanum við að taka upp í lögin almenna heimild til undanþágu frá samábyrgðarákvæðinu. En við flm. frv., sem leggjum kapp á að koma málinu fram, vildum ekki láta frv. stranda á því, og völdum því meðalveg, sem við töldum tryggilegan til samkomulags, og breyttum tillögu okkar á þann hátt, að öllum þessum ótta hefði átt að vera kipt í burtu með því að gera þessa undantekningu að sjerákvæði fyrir Kaupfjelag Borgfirðinga. Það þarf væntanlega ekki nú að fara að lýsa frekar en gert hefir verið þeirri nauðsyn, sem þessu umrædda kaupfjelagi er á þessari undanþágu, því það hefir áður verið gert við 2. umr. og engin breyting orðið síðan í þeim efnum, nema hvað þörfin á þessu kemur altaf betur og betur í ljós. Í húfi er hvorki meira nje minna en það, hvort fjelagið heldur saman og starfar áfram eða ekki. Og eins og tekið er fram í greinargerðinni, þá álíta Borgfirðingar, að hag sínum sje best borgið með því að starfa á þessum grundvelli og fá að njóta þeirrar verndar, sem samvinnufjelagalögin veita.
Hv. frsm. minni hl. (GunnS) talaði um það, að ekki væri viðeigandi að fara að gera undanþágur fyrir einstök fjelög frá lögum, sem væru svo almenns efnis sem þessi. Jeg skal játa, að þótt nokkuð miklu skifti yfirleitt um fyrirkomulagsatriði laga, að þau hafi fast form, þá hefir mjer altaf skilist svo, sem það væri höfuðatriðið, hvort tilgangi þeirra yrði náð í framkvæmdinni. Það finst mjer skifta meira máli en minni háttar forms- eða fyrirkomulagsatriði. Hjer er um að ræða eitt stærsta kaupfjelag landsins, um það að ræða, hvort samvinna og samtök innan þessa fjelagsskapar geti haldið áfram, aukist og þróast og sá árangur, sem samvinna og samtök hafa í för með sjer, og sú þýðing, sem það hefir fyrir þjóðfjelagið, náist eða ekki. Það er um það að ræða, hvort þessu takmarki megi ná innan þessa fjelagsskapar. Það getur oltið á því, og veltur á því, hver afdrif þetta mál fær hjer í þinginu. Og mönnum ætti að vera það skiljanlegt, að hjer er ekki verið að ganga á rjett nokkurs annars fjelags, heldur aðeins farið fram á undanþágu, miðað við nauðsyn þessa sjerstaka kaupfjelags, Kaupfjelags Borgfirðinga, nauðsynina á því, að það njóti verndar laganna til að starfa á þeim grundvelli sem margra ára reynsla er þar efra fengin fyrir, að sje sá tryggasti, heillavænlegasti og besti, til þess að ná því takmarki efnalegs sjálfstæðis, velmegunar og framfara, sem með samvinnu og samtökum er stefnt að að ná. Þess er enn að gæta, að ekki er farið fram á nein önnur eða meiri rjettindi til handa þessu fjelagi en t. d. framleiðslufjelög hafa samkvæmt samvinnulögunum, og ættu þau því síður að vaxa mönnum svo mjög í augum. Annars hefir hv. þm. Mýra. (PÞ) svarað athugasemdum og andmælum hv. 1. þm. Reykv. (JakM) og get jeg því látið hjer staðar numið.