12.03.1923
Neðri deild: 18. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í C-deild Alþingistíðinda. (2128)

58. mál, kosningar til Alþingis

Flm. (Bjarni Jónsson):

Jeg má fyrir mína hönd og fyrir hönd íslenskra kjósenda, þakka hv. þingmönnum góðar undirtektir, og með þeim góðu undirtektum einnig viðurkenning þess, að lögin ættu að vera þannig úr garði gerð, að kjósendur gætu notið þeirra. En hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ) telur þrjá daga of mikinn frest til atkvæðagreiðslunnar, og við hið sama kveður hjá hv. 1. þm. Árn. (EE). Jeg ætla að nefna, til skýringar, að t.d. úr Akurey á Breiðafirði á að sækja kjörfund að Skarði á Skarðsströnd. Úr Akurey er fyrst farin sjóleiðin til lands að Heinabergi á Skarðsströnd, og síðan þaðan landveg, þriggja stunda ferð, að Skarði. Þessa leið verður ekki sóttur kjörfundur, nema veður og sjór sje hagstæður, og hendir oft, að veður banna í tvo daga, en er vel fært hinn þriðja daginn. Þá eru og Rauðseyjar; þaðan verður og að sæta veðri og sjó, og má þaðan aldrei fara svo, að eigi sje eftir annað skip og nóg lið til að manna það, bæði til nauðsynlegra athafna heima fyrir, og til að greiða fyrir nauðleitarmönnum, er oft ber þar að. Sama gegnir um Rúfeyjar. Purkey, Hrappsey og fleiri. Taka má enn betur til skýringar þessu máli allan Eyjahrepp á Breiðafirði. Þaðan verður ekki komist alstaðar á einum degi, og mun fullstrangt að ætla til þess þrjá daga, þótt með kappi væri til þess gengið. Jeg þekki nú best til á Breiðafirði, en gera má þó ráð fyrir, að viða sje líkt á komið. Má vel vera, að þótt kjósendur sjeu eigi fullsæmdir af minna fresti, að hann verði nokkru minni en hjer er ákveðið, og yrði það þó nokkur bót frá því, sem nú er, og tækju þeir þá viljann fyrir verkið. En kostnaðarröksemdir andmælenda minna get jeg ekki fallist á, og gleypi alls eigi bita þann, að of dýrt sje um veturnætur að eyða 3 sólarhringum til kosninga. Fæ jeg ekki betur sjeð, en þeim tíma eða öðrum meiri, muni oft vera eytt til óþarfra eða lítt þarfra ferðalaga, á þeim tíma árs; en þótt það kostaði allmikið, er það þó betra en að ganga á skýlausan rjett manna, og svo er það og þingið, sem mest allra á að gæta rjettar í landinu, og hyggi menn nú að, hvort svo hafi verið gert.