04.05.1923
Neðri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í C-deild Alþingistíðinda. (2137)
58. mál, kosningar til Alþingis
Bjarni Jónsson:
Þótt jeg sje í raun og veru mótfallinn þeirri niðurstöðu, sem hv. minni hl. hefir komist að í þessu máli, þá ætla jeg ekki að halda langa ræðu. Jeg vildi aðeins skjóta því fram, hvert þeir, sem eru mótfallnir því, að kosningar standi yfir 2–3 daga, gætu þó ekki verið með því, að kosningin stæði yfir heilan dag, eða t. d. frá dagmálum til náttmála í sveitum og til miðnættis í kaupstöðum. Jeg vil, að hver kjósandi hafi tækifæri til að nota atkvæði sitt, en það er rangt, að geta slitið kosningunni, ef menn koma dræmt. Þetta á aðeins við í kaupstöðum; þar ætti kosning að standa yfir frá dagmálum til miðnættis. Það ákvæði mætti gjarnan vera, og ætti þá að koma brtt. um það til 3. umr.
Jeg skal að endingu taka það fram, gildandi ákvæðum byrji kjörfundur of seint fyrir Reykjavík. Úr þessu er að nokkru bætt með frv. á þskj. 86, en þó ekki til hlítar. Kjörfundur ætti að byrja svo snemma, að honum gæti verið lokið fyrir kl. 12 að kvöldi, án þess að svo fari sem nú, að fjöldi manns komist ekki að. Eins og verið hefir, þá hefir fjöldi manns orðið frá að hverfa, þegar kjörfundi er slitið. Lengri tími mundi bæta úr að nokkru. Eftir kl. 10 á kvöldin fer eldra fólk að hátta, og fer því ekki til kosninga úr því, þótt lengur sje opið.
Nú vildi jeg mælast til þess, að hv. minni hl. nefndarinnar tæki upp brtt. við 2. gr. frv., sem heimilaði, að kjörfundur byrjaði fyr að deginum en nú tíðkast, sem væri svo orðuð, að kjörfundur byrjaði eigi siðar en á hádegi. Þá gæti kjörstjórn í hverju kjördæmi hagað sjer eftir því, sem ástæður heimta.