04.05.1923
Neðri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í C-deild Alþingistíðinda. (2140)

58. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson):

Viðvíkjandi því, sem hv. 2. þm. Reykv. (JB) sagði, þá eru mjer ekki síður kunn vandræðin hjer í Reykjavík en honum. Jeg vildi því, að byrjað yrði kl.tíma fyr, því á kl.tíma kjósa þó margir, svo hundruðin, sem kysu, gætu orðið fleiri. Einnig mætti fjölga kjördeildum. Jeg hefi ekki á móti því, að brtt. bíði til 3. umr. Jeg vil, að sem flestir geti kosið, en það verður betur trygt með því, að kosningin standi yfir 2 daga en einn. Ef frestað verður atkvgr. um till., þá verða þær vitanlega ver staddar, því tími vinst til að fleyga þær. Við tökum því till. aftur, með því skilyrði þó, sem raunar er ekki hægt að setja, að frv. verði vísað til 3. umr. En við hættum á, að eiga það undir drengskap hv. þingdeildarmanna.