30.04.1923
Neðri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í C-deild Alþingistíðinda. (2156)
149. mál, löggiltir endurskoðendur
Flm. (Bjarni Jónsson):
Það var gaman að hlusta á ræðu hv. 1. þm. N.-M. (ÞorstJ). Ræðumaður var töluvert fyndinn, þar sem hann sagði, að ræða mín hefði verið árás á Sambandið, þó að jeg tæki það aðeins sem dæmi þess, hversu illa og ógætilega væri farið með fje almennings Sá er vinur, er til vamms segir. Jeg hefi alls ekki ráðist hjer á látinn mann; það eru ósannindi háttv. þm. (ÞorstJ: Háttv. þm. má gjarna taka alt aftur). Hann blæs sig út eins og belgur, þar sem hann er að verja skólastjóra Jónas Jónsson. Jeg tel honum það að vísu til sóma; það er drengilegt af honum að duga samflokksmanni sínum. Jeg tók ekki þetta dæmi um skólastjórann í því skyni, að segja neitt ilt um manninn; jeg held ekki svo fast á því. Hv. þm. og aðrir, sem það vilja, mega álíta hann verslunarfróðan mann mín vegna. (ÞorstJ: Hv. þm. er farinn að draga nokkuð mikið úr því, sem hann sagði áðan). Jeg sagði, að maðurinn væri ekki fær um starfið og að skólinn væri óþarfur; það er alt rjett.
Jeg nefndi þetta af því, að mjer er ant um Sambandið og af því, að bændur landsins eiga svo mikið undir Sambandinu, og gat þess einnig, að nefna mætti önnur dæmi. Jeg skal ekki fullyrða, hvort allar tölur, sem jeg tilgreindi, eru nákvæmlega rjettar, en það mun láta mjög nærri lagi.
Hv. þm. (ÞorstJ) sagði, að jeg mundi mega þakka fyrir að vera eins duglegur og skólastjóri samvinnuskólans. Jeg hefi ekki sagt neitt um það. Það getur vel verið, að hann sje samviskusamur um það starf sitt; en hann hefir bara ekki vit á málinu fremur en þegar hv. 1. þm. N.-M. (ÞorstJ) er að halda ræður um skólamál, sem hann skilur ekkert í, og vill svo reisa háskóla norður á Akureyri.
Jeg hafði gaman af því, er hv. þm. (ÞorstJ) var að biðja deildina að fella frv., af því að það væri árás á Sambandið og hinn nýlátna forstjóra þess. Þingm. gerir mjer þær getsakir, að jeg sje að ráðast á þennan mann, þó að jeg hafi aðeins talað um verk Sambandsins. Og svo ætlar hann að láta deildina fella frv. fyrir þetta. Það er fyndni. Ef hún vill gera það, þá verði henni það að góðu.