30.04.1923
Neðri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í C-deild Alþingistíðinda. (2162)

149. mál, löggiltir endurskoðendur

Jón Auðunn Jónsson:

Jeg skal ekki vera langorður. Mjer finst það ekki ná nokkurri átt að fella frv., þrátt fyrir það, þó að framsöguræðan væri dálítið sjerstæð. Alt hnotabit hv. þingmanna um hana o. fl. vil jeg leiða hjá mjer. Þetta frv. er mjög þarft og nauðsynlegt, og á það eitt á deildin að líta.