02.03.1923
Neðri deild: 10. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í C-deild Alþingistíðinda. (2178)

30. mál, stjórnarskipunarlög

Flm. (Magnús Guðmundsson):

Það er best að jeg byrji á hv. þm. Dala. (BJ). Hann sagði, að það væri undarlegt að sjá einmitt mig bera fram þessar breytingar nú. Jeg skil þetta ekki, og sje ekkert undarlegt við það. Jeg hefi sem sje frá upphafi verið mótfallinn fjölgun þinga og ráðherra, og er því nú í fullu samræmi við fyrri skoðanir mínar, sem jeg álít að reynslan hafi nú sannað, og þess vegna kem jeg með breytingarnar. Sami hv. þm. (BJ) talaði mikið um einveldi í þessu sambandi. Enginn heyrðist þó kvarta um slíkt þann tíma, sem ekki var hjer nema einn ráðherra og þing annaðhvert ár. En hv. þm. (BJ) vill helst hafa ráðherra sem allra flesta, eða að minsta kosti fjölga þeim, en ekki fækka, og þing vill hann hafa árlega og sem lengst. En ekki hefir þjóðin, sem hann talaði svo mikið um að væri yfir þinginu, óskað eftir því. Dæmið, sem hann tók, um flaustursvinnu þingsins, var líka nokkuð flausturslega valið. Það voru skattalögin. Því það var ekki rjett, sem hann sagði, að í upphafi hefði verið gert ráð fyrir 800 þús. kr. tekjum af frv. Jeg áætlaði í upphafi þvert á móti 1 miljón eða meira, og vísa jeg um þá deilu til þingtíðindanna 1921. Spá mín þá hefir ræst, og hv. þm. Dala. (BJ) hefir þar ekkert ofan í mig að reka. Reykjavík getur ekki hafa greitt hlutfallslega meira en aðrir landshlutar af tekjuskattinum, því að lögin gera öllum jafnt undir höfði.

Hv. þm. Dala. (BJ) sagði, að oft væri hrúgað saman 12–16 málum á dagskrá og væri því engin leið til athugunar. En þetta er ekki rjett. Svo mörg mál koma aldrei fyrir fyr en þau hafa öll verið athuguð í nefndum og sæmilega frá þeim gengið.

Þau ummæli hv. þm., að með frv. þessu væri verið að slá Alþingi af og ryðja braut fyrir íslenskan Mussolini, tek jeg ekki alvarlega. Hv. þm. hefir verið að skemta áheyrendum með því að færa fram slíkar fjarstæður.

Hitt var veigameira atriði hjá honum, ef rjett væri, að engan sparnað mundi leiða af fækkun þinga. En þetta byggir hann einvörðungu á því, að verða muni þref um aðrar breytingar á stjórnarskránni, en engin ástæða er til að ætla slíkt.

Hæstv. forsrh. (SE) sagði fátt, en heldur andaði þó köldu frá honum.

Þótti honum stjórnarskráin vera of ung til þess, að farið yrði að gera breytingar á henni, og óttast þrefið, eins og háttv. þm. Dala. (BJ). Jeg skil nú ekki, að það sjeu meðmæli út af fyrir sig, að stjórnarskráin er ung, en auðvitað er þetta álit hæstv. ráðh. í samræmi við aðrar gerðir hans, að ráðast á alt það elsta og það, sem lengi hefir verið í metum hjá þjóðinni, en hlúa að því nýstofnaða.

Jeg sat á þingi, er stjórnarskráin var samþykt, og minnist jeg ekki, að mikil deila stæði um innihald hennar. Eru og nú úti deilurnar við Dani, sem hættulegastar voru í þeim efnum.

Litlar röksemdir eru það einnig, að óvíst sje, hvort breytt verði um til bóta. Eftir þessu mætti aldrei fara fram á neinar breytingar, ef ekki væri einsætt og sannað, hvað gott mundi af þeim leiða.

Háttv. þm. Str. (MP) efaðist um, að gerlegt væri að samþykkja frv. þetta, vegna annara ákvæða stjórnarskrárinnar. En á því leikur enginn efi, að ákvæðin eru því ekki til fyrirstöðu. Má rjúfa þingið innan hins ákveðna tíma, og svo gæti það komið saman í janúarmánuði næsta ár.