04.04.1923
Neðri deild: 33. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 342 í C-deild Alþingistíðinda. (2190)
30. mál, stjórnarskipunarlög
Forsætisráðherra (SE):
Jeg tók það fram við 1. umr., að jeg teldi ekki hyggilegt að breyta stjórnarskrá, sem ekki væri eldri en þessi er. Jeg er sannfærður um, að þegar gengið var frá stjórnarskránni á þingi 1920, hefir engum komið til hugar, að svo fljótlega yrði hugsað til að breyta á ný grundvallarlögum þjóðarinnar. Jeg benti jafnframt á það, að ef á annað borð væri farið að breyta stjórnarskránni nú, mundu ýms atriði, sem miklar deilur hafa staðið um og ráðið var til lykta 1920, koma fram á ný. Þessi spádómur minn hefir ekki verið lengi að rætast. Á þessum fáu dögum, sem liðnir eru síðan 1. umr. málsins fór fram, hafa komið fram tillögur um stórvægilegar breytingar. Menn kunna að segja, að flestar þessar brtt. muni falla, og má það vel vera. En þó að fáar nái fram að ganga á þinginu, hvað verður þá, þegar málið kemur til atkvæða þjóðarinnar? Eru menn ekki sannfærðir um, að þá verður á ný fitjað upp á gömlu deilumálunum?
Nál. sýnir, að nefndin er ekki sammála nema í fáum atriðum. Jeg álít nú, að ekki geti verið umtalsmál að breyta stjórnarskránni nema brýn nauðsyn beri til, og skal jeg þá athuga þær breytingar, er gefið hafa ástæðu til, að frv. þetta er komið fram. Þó skal jeg taka fram strax, að svo mikilvægt mál sem breyting á stjórnarskránni ætti ekki að koma fram öðruvísi en frá stjórninni, eftir vandlegan undirbúning, og væri því rjettast að vísa málinu til hennar.
Mjer skilst, að hv. frsm. (MG) telji 2 aðalástæður til þess, að breyta þurfi stjórnarskránni. Önnur ástæðan er sú, að fækka þurfi ráðherrum, hin, að fækka þingum. Um fyrri ástæðuna skal jeg taka það fram, að eftir forsetaúrskurði, sem fjell á síðasta þingi, var talið, að ákveða mætti, að ráðherrar skuli vera 2, án þess að stjórnarskránni verði breytt. En að ráðherrar sjeu færri en 2 kemur ekki til nokkurra mála. Ekki af því, að einn ráðherra geti ekki kynt sjer öll mál, er koma til hans kasta, heldur vegna þess, að jeg tel alveg óviðeigandi að hafa ekki altaf í landinu mann með stjórnskipulegri ábyrgð. En ráðherra þarf jafnan að sigla á konungsfund, til þess að leggja stjórnarfrv. fyrir konung og fá staðfestingu hans á nýjum lögum, og væri landið þá ráðherralaust nokkurn tíma ársins.
Ef vjer litum til bankanna í Reykjavík, eru 3 bankastjórar við hvorn bankann. Ef nauðsyn er á 3 mönnum til að stýra einum banka, þá er ekki minni þörf á að hafa 3 menn til að stjórna öllu landinu. Jeg álít því enga ástæðu til að fækka ráðherrum, og með engu móti mega þeir vera færri en 2, og sje því enga þörf á að breyta stjórnarskránni vegna þessa.
Þá er hin ástæðan, að fækka þingum í sparnaðarskyni. Jeg hygg, að sá spámaður mundi aldrei sýna sig í framkvæmdinni, ef dæma á eftir reynslunni. Áður var ákveðið, að þing skyldi vera annaðhvert ár, en þó voru þing árlega um langt skeið. Það er engin ástæða til þess að ætla, að þegar viðskiftalíf þjóðarinnar verður margbrotnara, minki hin sama knýjandi nauðsyn til að hafa þing á hverju ári. Að þessu verður því enginn sparnaður, þar sem þing mundi háð árlega eftir sem áður.
Jeg álít, að ekki sje hyggilegt að hafa þing sjaldnar en einu sinni á ári. Í því er svo mikil trygging, að það hlýtur að margborga sig. Ef einhver stjórn kæmist til valda, sem færi mjög illa með völd sín, mundi það koma í ljós, hve illa það borgaði sig, að slík stjórn gæti setið í 2 ár án þess að þing kæmi saman. Og ef Alþingi samþykkir að fækka þingum, finst mjer það bera vott um þreytu og vantrú á sjálfu sjer, er jeg tel mjög óheppilegt.
Hjer er komin byrjunin að nýrri stjórnarskrárbaráttu, nýjum eldi, um grundvallaratriði stjórnarskrárinnar.
Jeg skal ekki fara langt út í brtt. hv. minni hl., en jeg lít svo á, að aðalástæðan móti því, að Alþingi sje ein deild, sje sú, að með því sje minni trygging fyrir því, að góð úrslit málanna fáist.
Að vísu er sá varnagli sleginn, að umræðurnar skuli vera 4, en það vegur ekki upp á móti tryggingu þessarar deildarskipunar, sem nú er, og það gæti auðveldlega orðið til þess, að sum mál fengju of fljóta afgreiðslu og ekki heppilega.
Auðvitað má deila um þetta, sem margt annað; fer hjer mikið eftir skapgerð hvers einstaks, hverjum augum hann lítur á þetta, en eitt er víst, að það er altaf viðurhlutamikið að breyta því, sem vel hefir gefist, og vita ekki hvað við tekur.
Þá leggur minni hl. til, að þingmönnum verði fækkað um 6. Hinir landskjörnu afnumdir. Það má vera, að þm. sjeu fullmargir, en hitt er meira vafamál, hvort rjett er að afnema þá landskjörnu. Hugsunin með landskjörinu var sú, að fá með því heilnæmt íhald í efri deild, og auk þess var gengið út frá, að þeir mundu alment hafa yfir meiri þekkingu að ráða en þeir hjeraðskjörnu.
Yfirleitt held jeg, að það sje mjög athugaverð stefna, sem altaf bólar meir og meir á, að breyta hinu og öðru áður en nægileg reynsla er fengin. Mun heppilegra að bíða eftir úrskurði reynslunnar, jafnt í þessum efnum sem öðrum. Vona jeg því, að sú verði niðurstaðan, að ekki verið hlaupið að því að breyta stjórnarskránni í þetta sinn.