17.04.1923
Neðri deild: 44. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 388 í C-deild Alþingistíðinda. (2202)
30. mál, stjórnarskipunarlög
Þorleifur Jónsson:
Við umr. um daginn voru það ekki margir, sem rjeðust á móti tillögum okkar hv. þm. S.-Þ. (IngB), og er fyrir þá sök ekki miklu að svara. Hæstv. forsrh. (SE) studdi okkar málstað, en honum ætti að vera það kunnara en mörgum öðrum, hve mikil störf hvíla á ráðherrunum. Hann kom með eina ástæðu í viðbót við þær, sem jeg hafði tekið fram, nefnilega þá, að illa fari á því, og bagi mikill, að landið verði ráðherralaust, þegar þessi eini þarf að fara utan á konungsfund, einu sinni eða tvisvar á ári. Er það og auðsætt, að þetta getur komið sjer mjög illa, að hafa engan í landinu, sem ábyrgð ber á stjórn þess, þótt ekki sje um langan tíma að ræða. Hv. frsm. (MG) játaði það með mjer, að lítill sparnaður væri að því að fækka ráðherrunum, og yfir höfuð fanst mjer hann ekki færa nein sjerleg rök fyrir nauðsyn þess að fækka þeim, fyrst sama sem enginn sparnaður verður við það. Því að mjer skildist hann samdóma mjer um það, að taka þyrfti þá upp landritaraembættið, eða eitthvað, sem svaraði til þess.
Hann vildi ekki gera mikið úr því, að störf ráðherra hefðu aukist mikið frá því, sem var áður. En allir vita þó, að bæst hafa við nýjar tegundir mála, svo sem ríkisverslun, vatnamál, utanríkismál, strandvarnarmál, svo að eitthvað sje nefnt, og margt fleira.
Hv. þm. talaði um, að lagaundirbúningur kæmi varla á herðar stjórnarinnar, þar sem ráðherrarnir hefðu varla tíma til að leggja vinnu í slíkt, þótt þeir væru 3. Þetta virðist þó benda til þess, að hv. þm. viðurkenni það fyllilega, að þeir hafi talsvert að starfa, og er það þá þeim mun undarlegra, að hann skuli treysta einum manni til að inna það starf af hendi.
Ekki virðist hann heldur bera neinn kvíðboga fyrir því, að erfitt verði fyrir einn mann að standa fyrir málum á þingi. En jeg vil halda mjer við það, sem jeg áður hefi sagt, að það hljóti að verða býsna erfitt.
Jeg býst við, að margir hv. þm. sjeu Þeirrar skoðunar, að ofvaxið sje einum manni að hafa yfirstjórn tveggja sýslna, en jeg verð þó að segja það, að fremur væri þó viðlit að fækka eitthvað sýslumönnum landsins heldur en að fækka ráðherrum niður í einn. Hitt væri ef til vill vel við unandi, að hafa aðeins 2 ráðherra, en til þess þarf ekki að breyta stjórnarskránni, heldur nægir aðeins einfaldur konungsúrskurður.
Hv. 3. þm. Reykv. (JÞ) lagði, að mjer fanst, mesta áherslu á það, að nauðsyn bæri til að taka upp landritaraembættið aftur. Sagði hann, að ekki gæti orðið góð stjórn á þessu landi fyr en það yrði gert. Þá fyrst kæmi festa í stjórnina. En það er nú svo með skrifstofustjórana, að þeir eru fastir embættismenn, og á skrifstofum stjórnarráðsins hljóta því að skapast fastar stjórnarvenjur, sem ekki er mikið hringlað frá. Ætti þetta embætti því ekki að vera óhjákvæmilegt af þeirri sök.
Mjer fanst sá hv. þm. (JÞ) helst mæla á móti 3 ráðherrum af þeirri sök, að það væri áhugamál Framsóknarflokksins að styðja að því, að svo yrði áfram. Þótti honum það nokkur vorkunn, þar sem flokkurinn byggist nú við að verða í meiri hluta. En þótt Framsóknarflokkurinn kunni, frá hans sjónarmiði, að vera í ljelegra lagi, eins og hann hefir einhverntíma látið sjer um munn fara, þá hugsa jeg samt, að hann sje þó svo vitur, að hann berjist ekki fyrir 3 ráðherrum sín vegna. Því þótt von væri um, að þessi flokkur næði meiri hluta um sinn, getur þó einhver annar flokkur náð meiri hluta, er stundir líða. Það gengur svo í öllum löndum, að flokkarnir skiftast á, og væri því barnaskapur að ætla sjer að aka seglum í slíku misvindi á þann hátt, sem hv. þm. talaði um, og ekki til trúandi nema hans eigin flokki. Það, sem fyrir okkur vakir, er ekki það, hvort þetta kunni að vera betra fyrir þennan flokkinn eða hinn, heldur hitt, að stjórn landsins muni að öðru jöfnu fara betur úr hendi hjá þrem mönnum en einum.
Jeg hefi heyrt því haldið fram af einstöku manni, þótt ekki hafi það komið fram í umræðum fyr en nú, hjá hv. 2. þm. N.-M. (BH), að fækkun ráðherra hlyti að verða nokkurskonar allsherjarlyf gegn flokkaringulreið þeirri, sem nú er. En jeg er nú ekki sjerlega trúaður á, að það verði mikil lækning á þeim meinum. Jeg er alveg sannfærður um, að þjóðin er ekki mikið að hugsa um það við kosningar, hvort ráðherrar eru 1 eða 3. Hver flokkur reynir að ná sem mestu atkvæðamagni, án alls tillits til þess. Nokkur undanfarin ár hefir enginn flokkur haft nægilegan meirihluta á þingi til að mynda stjórn. Má vel gera ráð fyrir, að svo geti orðið áfram, eins þó ráðherra sje aðeins einn. Hvernig ætti t. d. að mynda stjórn af þremur sundurleitum, jafnsterkum flokkum? Þá gæti vel svo farið, að konungur yrði að taka í taumana og skipa einhvern í ráðherrasæti, og tækist þeim manni ekki að mynda um sig meirihluta á þingi, yrði það auðvitað minnihlutastjórn. Þetta leiðir til sífeldra og snöggra stjórnarskifta, sem getur orsakað, að það þurfi hvað eftir annað að rjúfa þing. Jafnvel þótt ákveðinn meirihlutaflokkur sje til, getur farið svo, að erfitt sje að sameina sig um einn mann. Vjer höfum dæmin fyrir oss, þó nokkuð sje frá liðið, er forsetar þingsins urðu að fara á konungsfund til þess að ræða við hann um ástandið, er ekki fjekst samkomulag um það á þingi, hver ætti að hljóta hnossið og verða ráðherra. Þó var aðeins um einn ráðherra að ræða þá. Þetta var á þinginu 1909. Nokkru síðar, mig minnir það vera 1913, reis upp deila milli flokkshöfðingja meiri hlutans út af ráðherraskipun. Þessi dæmi sýna það, að jafnvel það, að hafa einn ráðherra, getur klofið flokka og valdið sundrung. Svo þetta sýnist ekki vera neitt allsherjar læknislyf við flokkasundrung. Jeg sje ekki annað en að meiri hluti geti myndast á þingi um stjórn, eins fyrir það, þó ráðherrar sjeu fleiri en einn eða tveir, og hann hlýtur að myndast eftir því sem málin skýrast betur fyrir mönnum, án tillits til tölu ráðherra. Jeg þarf ekki að ræða meir um þetta atriði, það liggur svo í augum uppi, enda er mjer þetta ekki mikið kappsmál, þótt jeg á hinn bóginn álíti stjórn landsins miklu betur komna í höndum 3 manna en eins manns.
Hv. þm. Str. (MP) mælti mjög á móti fækkun þinga, og sagði enn fremur, að jeg hefði talið fjárlögin spádóma. Þetta er nú kannske ofmælt hjá hv. þm., en tekjuhlið fjárlaganna verður þó einlægt spádómur. Fjárlögunum ber ekki ætið saman við landsreikningana eftir á, síst hvað tekjurnar snertir. Við erum að reyna að spá þannig, að ræst geti; að tekjurnar verði að minsta kosti ekki minni en þær hafa verið áætlaðar. Gætum við því vel haldið áfram að spá á sama hátt fyrir árið 1925, enda hefir oss oft tekist að spá svo varlega, að tekjurnar hafa farið fram úr áætlun.
Jeg held menn verði að játa, að þegar þing er komið saman, hrúgast inn á það aragrúi af málum, bæði nauðsynlegum og ónauðsynlegum, og mun svo einlægt verða, þó þing sjeu á hverju ári. Eru nú mörg þau mál á döfinni hjer, sem vel hefðu mátt bíða, og er það miklu betra, að þingið hafi um færri mál að fjalla, ef þau væru þörf og nauðsynleg. Hv. þm. Str. (MP) talaði fagurlega fyrir sínum miklu brtt. við stjórnarskrána, og er ekki því að neita, að þær eru margar mjög markverðar og til bóta sumar.
Á þinginu 1919 voru ýmsar till. uppi í stjórnarskrárnefnd, sem ef til vill hefðu verið heppilegri sumar, ef þær hefðu náð að ganga fram; þar á meðal var það, að þingið skipaði aðeins eina málstofu. En þar voru skoðanir mjög sundurleitar; sumir vildu t. d. hafa alla Ed. landskjörna, og var því skamt öfganna á milli. Því varð það þá, að menn kusu að fara miðlunarveginn og hafa þingið líkt skipað og áður, en í stað hinna 6 konungkjörnu þingmanna komu nú 6 landskjörnir þm., því að menn treystu þessu betur til að ná samþykki allrar þjóðarinnar. Held jeg og að svo fari enn, að ekki fáist meiri hluti á þingi fyrir svona stórkostlegum breytingum á stjórnarskrá vorri, og þó svo færi, tel jeg mjög óvíst, að þjóðin öll yrði á sama máli. Mundi þetta verða að deilumáli um langan tíma, og er þá betra að hafa þennan bræðing frá 1919, sem þjóðinni er þó ekki beint á móti skapi, er hún hefir sætt sig við þetta fyrirkomulag, sem nú er. Öðru máli er að gegna um það, að raddir hafa borist víðs vegar að um það, að óþarft mundi vera að hafa þing á hverju ári, og því held jeg að óhætt muni vera að samþykkja þá breytingu, vegna þess, að hún muni ná samþykki þjóðarinnar eftir á.