17.04.1923
Neðri deild: 44. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 412 í C-deild Alþingistíðinda. (2208)

30. mál, stjórnarskipunarlög

Jón Þorláksson:

Sárfá orð. Það er enginn ágreiningur milli mín og hv. þm. Str. (MP) um þetta landskjör hjer. Þar sem aðeins eru kosnir 6 þingmenn með sjerstökum kosningarrjetti, af 42 þm., sem þingið skipa, þá er auðvitað, að um ekkert stefnumál er að ræða, hvort þessum mönnum er haldið eða ekki. En að hafa óskift þing og víðtækan kosningarrjett er stefnumál í öðrum löndum. Var t. d. í öll þau ár, sem jeg var erlendis, prentað á blaðhaus aðalmálgagns jafnaðarmanna í Danmörku þessi tvö stefnuskráratriði jafnaðarmanna. Og jafnaðarmenn hafa þetta á stefnuskrá sinni í öllum löndum.

Það er auðvitað rangt hjá hv. þm. (MP), að jeg hafi ætlað að hræða þingmenn, en mjer þótti handhægast að hafa þá aðferðina að vísa einungis á, hvar rjett væri að skipa þessu sess. En vel treysti jeg mjer að mótmæla jafnt þessu atriði sem öðru í stefnuskrá jafnaðarmanna, ef jeg vildi eyða tíma þingsins til þess.

Hv. þm. (MP) talaði um samúðina, sem hann nyti í þessu máli. Það er rjett, að fjölmennur hópur hjer í bænum hefir samúð með þessum brtt. hans, sem sje Alþýðuflokksmenn, en þær njóta hennar ekki hjá mjer — því jeg er íhaldsmaður — eða þeim flokki, sem líkar skoðanir hefir á landsmálum og jeg. Sjeu einhverjir menn fylgjandi þessum nýmælum, sem studdu mig til þings, þá hafa þeir menn stutt mig vegna einhvers annars en þess, að þeir hafi verið mjer samhuga í landsmálum.