23.04.1923
Neðri deild: 48. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í C-deild Alþingistíðinda. (2217)
30. mál, stjórnarskipunarlög
Eiríkur Einarsson:
Jeg hefi leitt hjá mjer að ræða stjórnarskrármálið á þessu þingi, en vegna þess, að skoðanir mínar um það mál eru nokkuð frábrugðnar áliti þeirra, er enn hafa látið til sín heyra, vil jeg lítilsháttar gera grein fyrir þeim.
Þegar stjórnarskráin var hjer í Nd. til umræðu á öndverðu þessu kjörtímabili, ljet jeg í ljós álit mitt um, hvernig tala ráðherra myndi heppilegast ákveðin í stjórnarskránni, og er það álit mitt enn óbreytt. Jeg held því fram, að ráðherratalan sje best ákveðin svo, að henni megi breyta með einföldum lögum. Ætti í stjórnarskránni að standa að ráðherrar megi veira einn, tveir eða þrír, eftir því sem hentast þyki í hvert sinn, og breytingar innan þeirra takmarka frjálsar með konungsúrskurði.
Jeg lít svo á, að meðan þessi ringulreið er á öllu innan þings og utan, þá sje ekki rjett að ætla sjer með stjórnarskrárákvæði að festa ráðherratöluna meira en svona. Einn ráðherra getur ekki orðið neitt kraftameðal til að koma einum flokkanna í meiri hluta á þinginu. Sundurlyndi ýmsra þm. nú um það, hvað best sje í þessum efnum, sýnir best, hve varúðarvert er að ákveða í stjórnarskrá, hve margir ráðherrar skuli vera, nánar en jeg hefi stungið upp á. Hin einskorðaða niðurstaða yrði handahófsniðurstaða, sem ef til vill yrði krafist breytinga á fyr en varði. En með því móti tapaði stjórnarskráin gildi sínu. Jeg tel það langæskilegast, og að að því verði að stefna, að ráðherra sje aðeins einn, ábyrgðin sem mest í eins manns höndum, og þegar flokkaskipunin batnar, einhver heilsteypt þjóðmálastefna sigrar, þá á þetta að vinnast, og vinst vonandi bráðlega. En sá tími virðist ekki kominn og því tel jeg betra að bíða og sjá, og láta sjer nægja nú að liðka til stjórnarskrárákvæðið svo að lagfæringin verði henni samrýmanleg, þegar sá rjetti tími kemur. Verður forvitnismál að heyra vilja kjósenda um þetta við kosningar þær, sem nú eru fyrir dyrum.
Þá er annað atriði, sem jeg vildi minnast á, hvort þing verði haldið á hverju ári eða annaðhvert ár. Jeg hefi greitt brtt. í þessu efni atkv. til þessarar umr., en tel þó ákvæðið óhagfelt, eins og það er orðað. Mjer finst, að rjettast væri, að stjórnarskráin miðaði við þing árlega, áfram eins og nú er, en fæli í sjer ákvæði um, að því mætti breyta með einföldum lögum, á þann hátt, að það sje háð annaðhvert ár. Í þessu er fólgið minna rót á stjórnarskránni frá því, er þetta var ákveðið nú fyrir fáum árum.
Jeg vil því lýsa því yfir, að jeg mundi ljá frumvarpinu atkvæði mitt upp úr deildinni, ef þessar breytingar fengjust á því, annars ekki. Hvort gerlegt er að eiga þar undir skoðunum háttv. efri deildar, er komið undir því, hvort um veruleg eða smáatriði er að ræða. Að mínu áliti eru það veruleg atriði, sem þarf að breyta frá því, sem frv. er nú, til þess að jeg geti hallast að því. Vegna þess er það eina leiðin til þess að atkv. mitt fylgi frv. lengra en orðið er, að það verði nú, fyrir forgöngu stjórnarskrárnefndar, tekið út af dagskrá og gerðar á því þær lagfæringar, sem jeg hefi stungið upp á.