23.04.1923
Neðri deild: 48. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í C-deild Alþingistíðinda. (2218)
30. mál, stjórnarskipunarlög
Magnús Guðmundsson:
Nú hefir háttv. 1. þm. Árn. (EE) látið í ljós, að hann mundi geta fylgt frv. með því skilyrði, að í því sje látið óákveðið um tölu ráðherra. Er það ekki rjett skilið? (EE: Jú). Þá er jeg fús á að vinna með háttv. þm. að breytingu í þá átt; og óska jeg því eftir að hæstv. forseti taki málið út af dagskrá, til þess að mjer gefist færi á, ásamt háttv. 1. þm. Árn. (EE), að fá tíma til að undirbúa breytingu á frv., að þessu leyti, og koma fram með athugasemdir um það.