21.03.1923
Neðri deild: 25. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í C-deild Alþingistíðinda. (2226)

88. mál, menntaskóli Norður og Austurlands

Ingólfur Bjarnarson. Eins og háttv. flm. (ÞorstJ) tók fram í ræðu sinni áðan, þá er fyrirkomulag það, sem þetta frv. fer fram á, ekki nýtt. Það hefir þvert á móti verið svo, að mentaskólarnir hafa lengst af verið 2 á þessu landi, annar á Norðurlandi og hinn á Suðurlandi. Hefir sú skipun skólanna þá verið talin hæfa best þörfunum. Enda auðskilið, að svo sje í jafnstrjálbygðu landi sem vort land er. Hefir reynslan sýnt, að þetta var viturlega ráðið. Nú hefir aftur um langantíma verið aðeins einn skóli, enda svo komið sögu, að flestum landsmönnum utan Reykjavíkur er ókleift að nota hann, að undanteknum einstöku efnamanni. Það, sem þessu veldur, er dýrtíðin hjer í bænum. Þarf ekki að skýra það atriði, sem öllum er alkunnugt og viðurkent. Afleiðingin af þessu er sú, að ekki koma aðrir til að geta sótt mentaskólann en börn Reykvíkinga og örfárra efnamanna úti um land. Öllum þorra landsmanna verður því í raun rjettri fyrirmunað að njóta í nokkru æðri skólanna. Jafnhliða þessu hlýtur svo þetta fyrirkomulag að auka aðstreymið til Reykjavíkur, sem virðist þó nóg fyrir. Jeg þekki þó nokkur dæmi þess, að menn hafa flutt til Reykjavíkur norðan úr landi, aðeins vegna þess, að það var eina kleifa leiðin til að koma börnum þeirra til náms. Held jeg, að allir hljóti að viðurkenna, að þetta ástand sje ekki holt fyrir þjóðarhaginn, hvorki það, að ekki geti aðrir orðið mentamenn í landinu en börn Reykvíkinga og fárra efnuðustu manna — þó misrjettinu sje slept —, nje heldur hitt, að mikið aðstreymi fólksins myndist til Reykjavíkur, umfram það, sem þegar er, með það eitt fyrir augum, að það er eina leiðin til að koma börnum sínum til menningar.

Þetta frv., sem hjer er á ferðinni, miðar að því að bæta úr þessum vandkvæðum og minka það aðstöðumisrjetti, sem gildir fyrir ungmenni landsins um aðgang að æðri skólum. Hjer er farið fram á, að lærdómsdeild skuli sett á fót í sambandi við gagnfræðaskólann á Akureyri. Veit jeg, að allir hv. þm. muni skilja það, sem felst í þeirri kröfu, og vænti þess, að þeir sjái jafnframt, hve óvænlega horfir um skólamálin með núverandi fyrirkomulagi, ef mestur hluti þjóðarinnar verður útilokaður frá að geta látið börn sín ganga mentaveginn. Það yrði máske borið fram sem ástæða gegn frv., að erfiðara sje að fá góða kenslukrafta á Akureyri en hjer syðra, þar sem flestir mentamenn landsins eru saman komnir. Jeg er að vísu ekki svo kunnugur því máli, að jeg leyfi mjer að gera samanburð á núverandi kenslukröftum við skóla þessa. En jeg þori hins vegar að fullyrða, að nú sem stendur eru mjög góðir kenslukraftar við gagnfræðaskólann á Akureyri í ýmsum greinum, og veit jeg, að það er alviðurkent. Hygg jeg því, að engin sjerstök ástæða sje til að ætla, að þetta væri gild rök móti frv.

Þá verð jeg að halda því fram, að það mundi hafa góð áhrif og heppileg, ef skólarnir eru tveir. Það myndi eðlilega skapa samkepni milli þeirra um, að stúdentar hvers um sig fengju sem besta viðurkenningu fyrir lærdóm sinn og menningu á allan hátt. Er það þýðingarmikið atriði.

Aðalatriðið er þó þetta, að með þessu móti fá miklu fleiri landsmenn færi á að menta börn sín en ella.

Jeg skal ekki fara neitt út í kostnaðarhliðina, því hv. fhn. (ÞorstJ) hefir gert það svo skýrt og ítarlega, enda er það og tekið fram í greinargerðinni. Þó verð jeg að lita svo á, að röksemdir hv. þm. Dala. (BJ) hafi ekki verið á góðum rökum bygðar. Jeg skal þó ekki fara frekar út í það, en undirstrika þann mikla sparnað, sem margir menn úti um landið myndu njóta af þessum skóla, ef hann verður settur á stofn, svo sem frv. gerir ráð fyrir.