28.04.1923
Neðri deild: 52. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 519 í C-deild Alþingistíðinda. (2246)
88. mál, menntaskóli Norður og Austurlands
Pjetur Ottesen:
Jafnframt því, sem jeg skýt því til hæstv. forseta að fella nú þegar úrskurð um þetta, sem hjer er um deilt, því til þess hefir hann skýlausan rjett samkvæmt þingsköpum, þá vil jeg benda á, að þegar tilmæli komu til hæstv. forseta hjer um daginn um að taka stjórnarskrármálið af dagskrá, var því neitað, og það þó gert áður en slitið var umræðum um málið.