20.04.1923
Neðri deild: 46. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í C-deild Alþingistíðinda. (2259)

60. mál, bjargráðasjóður Íslands

Frsm. (Pjetur Ottesen):

Jeg skal sýna það í verkinu, að jeg tel mjög rjettmæt og allar virðingar verð þau tilmæli hæstv. forseta til deildarmanna, að vera ekki alt of langorðir og eyða ekki tíma þingsins í málalengingar. Landbúnaðarnefndin hefir fallist á þá stefnu, sem fram kennir í frv., að rjettara sje að beina starfsemi bjargráðasjóðsins að því að styðja samtök manna og fjelagsskap, sem miðar að því að koma í veg fyrir fóðurskort og hallæri, t. d. með því að veitt sjeu lán úr sjóðnum til þess að koma á fót fóðurbirgðafjelögum, forðabúrum og öðrum fjelögum og stofnunum, er hafa það markmið að koma í veg fyrir hallæri. Það er einmitt með því að snúa sjer að þessari hlið bjargráðastarfseminnar, sem nefndin er sammála um, að tilgangi bjargráðasjóðsins sje best náð. Og það er einn meginþáttur í góðri afkomu og efnalegu sjálfstæði þjóðarinnar, að jafnan sje hægt að hafa búfje trygt fyrir fóðurskorti. Af hálfu hins opinbera hefir á ýmsan hátt verið reynt að tryggja búpening fyrir fóðurskorti og tryggja góða meðferð á búpeningi. Fyrst voru sett lög 1909 um kornforðabúr til skepnufóðurs, þar sem hrepparnir gátu gert samþyktir um stofnun forðabúra. Sömuleiðis lög 1911 um heyforðabúr, þar sem samskonar heimild er veitt. Þá koma forðagæslulögin frá 1913, um eftirlit með ásetningu. Loks eru lögin frá 1919 um samþyktir um stofnun eftirlits- og fóðurbirgðafjelaga.

Nefndin álítur heppilegra og betra, og líkegra til að ná tilgangi sínum, að umbætur á þessu sviði byggist á frjálsum samtökum, en ekki lagaþvingun. Á þessu byggjast fóðurbirgðafjelögin. En til þess að koma slíkum fjelagsskap á fót útheimtist nokkurt stofnfje, en eins og nú stendur, er þröngt fyrir dyrum í sveitunum og erfitt með fjárframlög. Fyrir því áleit nefndin, að tilgangi bjargráðasjóðsins yrði engan veginn betur náð en einmitt með því að veita hagfeld lán til slíkra fyrirtækja. Með því yrði náð því marki, sem stefnt var að með bjargráðasjóðslögunum.

Eins og frv. var flutt upphaflega, voru í því ákvæði, sem miðuðu að því að tryggja hverju sýslufjelagi og bæjarfjelagi yfirráð og notarjett þess fjár, er bæjar- eða sýslufjelagið á í sjóðnum, ásamt jafnhárri upphæð af landssjóðstillaginu. Stjórn bjargráðasjóðsins lagði heldur á móti þessu, og hallaðist nefndin að till. hennar í þessu efni og leggur til, að ákvæðin verði feld burtu.

Þá hefir nefndin tekið til greina brtt. sem hv. þm. Dala. (BJ) hefir flutt við þetta frv., um það, að þau sveitarfjelög verði látin ganga fyrir um þessar lánveitingar, sem hættast er við samgönguteppu að vetrarlagi, enda er mikil sanngirni í því. Jeg held það hafi verið hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ), sem gat þess við mig, að einnig gæti verið ástæða til að láta samskonar ákvæði gilda um þau hjeruð, þar sem hafnleysi er mikið, eins og t. d. er um Skaftafellssýslur, og er það mjög rjettmætt, og vil jeg því beina því til stjórnarinnar, að svo verði einnig gert, og ætti slík ábending í framsögu að nægja, þó það sje ekki beint tekið upp í frv. Sje jeg svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál.