19.03.1923
Neðri deild: 23. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í C-deild Alþingistíðinda. (2291)

55. mál, útflutningur hrossa

Frsm. (Pjetur Þórðarson). Viðvíkjandi ástæðum hv. 1. þm. Rang. (GunnS), vil jeg segja nokkur orð.

Hann sagði, að markaðinum stafaði hætta af því, ef skálduð hross og flókatryppi væru flutt út. Er þetta auðvitað rjett, en jeg tók það fram, að á slíku yrði engin hætta, því að eftirlitið yrði gott, og um undantekningu verður að ræða, ef illa útlitandi hross yrðu flutt út.

Held jeg, að enginn vildi leggja út í þá fjárhagslegu hættu að flytja út illa útlítandi hross. En annars mun nefndin taka til athugunar skynsamlegar brtt. við 3. umr. máls þessa, ef þær koma fram.