21.03.1923
Neðri deild: 25. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í C-deild Alþingistíðinda. (2304)

55. mál, útflutningur hrossa

Pjetur Ottesen:

Hv. þm. Barð. (HK) rjeðst á móti frv. þessu, og skildist mjer hann byggja mótmæli sín á síðustu hrossasendingu, sem fór fyrir nokkru til útlanda hjeðan úr Reykjavík. Að minsta kosti var það dæmið, sein hann tók, og spurði mig um leið, hvort jeg hefði lítið eftir, að hrossin væru sæmilega útlítandi. Það gerði jeg ekki, enda er það ekki mitt verk að líta eftir útflutningshrossum í Reykjavík. En jeg þykist þess fullviss, að svo hafi verið gert; mjer er kunnugt um, að útflutningsstjórinn í Reykjavík, Magnús dýralæknir Einarson, er mjög samviskusamur og gerir jafnan skyldu sína í þessu efni. Það þekki jeg, sem allmikið hefi fengist við að kaupa hross til útflutnings, af eigin reynslu. Hafi hv. þm. (HK) sjeð ljeleg og illa útlítandi hross í þeim hóp, efast jeg ekki um, að útflutningsstjóri hafi gert þau afturreka.

Hv. þm. Dala. (BJ) vildi rengja það, sem jeg sagði um útflutningsstaðina. Jeg styð fullyrðingu mína í þessu efni við reynsluna, og full 15 ára reynsla hefir fært mönnum heim sanninn um, að það sje rjett, sem jeg fór með. Jeg gat þess enn fremur, að síðustu árin hefði það komið fyrir, að hestar hefðu verið fluttir út frá 4. höfninni, sem sje Stykkishólmi. Þess vegna er þessi kostnaðargrýla hv. þm. gripin úr lausu lofti og gersamlega ástæðulaus.

Þá mintist hv. þm. Dala. (BJ) enn á horfellinn og sagði hann, að á þeim 1000 árum, sem Ísland hefir verið bygt, hafi aldrei komið svo verulega harðir vetur, að ekki hafi eitthvað fallið af hrossum. Jeg vil leyfa mjer að benda hv. þm. á, að einhver mesti jarðbanna- og hagleysisvetur á seinni árum var veturinn 1920. En þá veit jeg ekki til, að nokkursstaðar á landinu hafi verið fellir, hvorki á hrossum nje öðrum fjenaði, heldur var talið, að hross hafi þá gengið óvenjuvel undan. Þetta er gleðilegur vottur um þær framfarir, sem landbúnaðurinn hefir tekið á seinni árum, í því að tryggja búpeningsfóður, því að vafalaust hefði jafnmikill snjóa- og hagleysisvetur valdið miklu tjóni fyr á öldum.