21.03.1923
Neðri deild: 25. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 549 í C-deild Alþingistíðinda. (2305)
55. mál, útflutningur hrossa
Bjarni Jónsson:
Jeg skal aðeins geta þess gagnvart 15 ára reynslu hv. þm. Borgf. (PO), að hún sannar ekki neitt um vetrarútflutning, því að mjer vitanlega hefir ekki verið um slíkt að ræða fyr en nú í vetur.