13.03.1923
Neðri deild: 19. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í B-deild Alþingistíðinda. (231)
12. mál, aðflutningsbann á áfengi
Frsm. (Magnús Jónsson):
Eins og háttv. þm. hafa sjeð af nál. á þskj. 84 við þetta frv., hefir nefndin orðið ásátt um, að frv. næði óbreytt fram að ganga.
Það er venja að segja, að eigi þurfi mörg orð um þau frv., er þingið hefir áður haft til meðferðar, enda þótt allur þorri hv. þm. hafi ef til vill gleymt rökum þeim, er með frv. hafa verið færð. Í þetta sinn er þó óhætt að beita þessari röksemd, því að í fyrra, er frv. var hjer til umræðu og samþykt, voru svo miklar umræður um það, og það þá eitt af stórmálunum, svo að háttv. þm. mun enn í fersku minni alt, sem þá var fært með og móti. Ættu því heldur eigi að þurfa að spinnast langar umræður um það nú, og það því síður, sem allar ástæður eru óbreyttar frá því á síðasta þingi í öllu verulegu. Ekkert hefir skeð síðan, er gæti valdið því, að háttv. þm. greiddu nú atkv. á annan hátt en þeir gerðu þá. Báðir aðiljar eru nú svipað staddir og þá, og víst er það, að eigi munu Spánverjar slá af kröfunum nje vera samningafúsari en áður; öllu heldur munu þeir vera sterkari og áleitnari en nokkru sinni fyr, og þarf ekki annað en benda á skifti þeirra við Norðmenn. Að því er kemur til okkar afstöðu, þá er óhætt að fullyrða, að hún sje síst betri nú en í fyrra, er samningurinn var gerður, nje til mála komi, að vjer getum neitað kröfum Spánverja nú frekar en þá.
Yfirleitt hefir ekkert verið gert í þessu máli síðan í fyrra, annað en það, að stjórnin sendi Pjetur Ólafsson konsúl til Suður-Ameríku, til þess að kynna sjer þar markaðshorfur fyrir íslenskan saltfisk. Árangurinn hefir auðvitað eigi ennþá orðið sá af þessari ferð, að það breyti nokkru viðvíkjandi þessu máli nú, en af því að það snertir málið óbeinlínis, ætla jeg að minnast á þessa sendiför lítið eitt. Sendimaðurinn lagði af stað frá Lundúnum til Suður-Ameríku 19. okt. í haust. Jeg tek það fram — og eru það mín orð en eigi nefndarinnar, — að mjer þykir hæstv. stjórn hafa dregið nokkuð lengi að senda í þessa för. Vænlegast Hefði verið að senda svo fljótt, sem unt var. Eigi er þó svo, að eftir skýrslum þeim, er fram eru komnar, sje ástæða til að ætla, að önnur úrslit hefðu fengist á samningum vorum við Spán, þótt fyr hefði verið farið.
Eftir ráðstöfunum sendimannsins voru send hjeðan sýnishorn af saltfiski til Suður-Ameríku, og voru þau höfð í ýmiskonar umbúðum, bæði úr trje og trje og blikki. Fiskurinn kom fram í mjög mismunandi ásigkomulagi: yfirleitt var hann lakari í blikkumbúðunum, enda þær ekki góðar. Um markaðshorfurnar er það helst að segja, að í Argentínu, t. d. í Buenos Ayres og víðar, voru horfurnar slæmar, mest sökum þess, að allgóður fiskur var þar á markaðinum fyrir, og má búast við erfiðum keppinautum þar. Aðalmarkaðshorfurnar eru í Brasilíu. Þar var á markaðnum aðallega norskur, enskur og kanadískur fiskur, yfirleitt mjög ljótur, en var þó ekki illa af honum látið, því ekki var öðru að venjast. íslenskur fiskur þótti þar miklu betri, og voru þó sýnishornin, er þangað komu, alls eigi í góðu ástandi. Til Brasilíu flyst allmikið af fiski: mun innflutningurinn vera um 40–50000 smálestir árlega, og er það alt að því tvöföld saltfisksframleiðsla Íslands. Um verð er vont að fá ábyggilegar upplýsingar, og treysti jeg mjer ekki til að segja neitt ákveðið um það. Enn er alt óvíst um kostnað við flutning og þess háttar.
Verðið á stórum saltfiski var í desember síðastliðnum 110–120 milreis pr. 58 kg. kassa, en var að lækka; má gera ráð fyrir ca. 100 milreis pr. kassa, eða 290 milreis pr. skippund. Það versta er, að þetta er í pappírspeningum og gildi þeirra mjög óstöðugt og hefir sífelt farið hækkandi. Nú sem stendur jafngilda 341/3 milreis einu sterlingspundi. Þá spillir það og fyrir fiskmarkaðinum, að kjöt er þar í lágu verði, ekki nema 40% af fiskverði.
Þrátt fyrir þetta eru líkur fyrir, að gagn geti orðið af sendiförinni. Herra Pjetur Ólafsson segir svo í skýrslu sinni:
„Jeg efast ekki um, að í Brasilíu megi fá sæmilega góðan markað fyrir töluvert af íslenskum fiski.
Þá ætlar hr. Pjetur Ólafsson að gera tillögur um, að sendur verði fiskur hjeðan, er þar sem um tilraun er að ræða, má búast við, að árangurinn sjáist eigi þegar í stað. Jeg vona, að háttv. stjórn styrki þessar tilraunir áfram, sjerstaklega með því að ábyrgjast áhættuna við fisksendingar fyrst í stað. Í Brasilíu eru allströng innflutningsskilyrði, og verður því að gæta vel að því, að sendingar verði eigi rjettlausar. er þangað kemur.
Jeg hefi skýrt frá þessari för hr. Pjeturs Ólafssonar sökum þess, að það snertir þetta frv. óbeinlínis. Það sýnir, að markaðshorfur hafa eigi breyst svo, að það geti á nokkurn hátt haggað úrslitum þessa máls nú.
Jeg hygg, að frv. græði ekki á miklum umræðum, því háttv. deildarmenn munu þegar vera ráðnir í því, hvernig atkvæði þeirra falla.