13.03.1923
Neðri deild: 19. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í B-deild Alþingistíðinda. (233)

12. mál, aðflutningsbann á áfengi

Sveinn Ólafsson:

Jeg ætla hvorki að þakka nje vanþakka háttv. allshn. fyrir meðferðina á þessu frv. Mjer finst lítið sagt í áliti hennar um það, nema já og amen. Það er máske rjett, að málið græði eigi á umræðum, en jeg get eigi látið hjá líða að lýsa yfir þeirri skoðun minni, að fullmikil auðmýkt sje fólgin í því að samþykkja frv. svona fortakslaust. Mjer finst að háttv. Alþingi gæti sætt sig við að samþykkja frv. til nokkurra ára í senn um undanþágu frá bannlögunum, en ekki eins og gert er ráð fyrir nú, að láta þetta gilda um óákveðinn tíma eða aldur og æfi. Þetta virðist þó vaka fyrir allshn. Fyrir því ætla jeg að koma með breytingartillögu til 3. umr., um að undanþágan sje tímabundin og gildi t. d. um 3 ár. Jeg er sömu skoðunar og á síðasta þingi um undanþáguna, að hún sje um grun gerð og alls ekki sú brýna ástæða til þess að hlaupa svona af fúsum huga í faðm Spánverjans, sem meiri hluti viðskiftamálanefndar síðasta þings vildi vera láta.

Jeg hefi aldrei getað sannfærst um, að hjer yrði að ræða um svo mikinn fjármunalegan skaða af neitun Spánarsamningsins, sem meiri hluti viðskiftamálanefndar hjelt fram í fyrra. Síðan hefi jeg komist að þeirri niðurstöðu, að skaðinn sje jafnvel langtum minni en jeg hugði hann þá, og ef til vill enginn. Vjer vitum ekki, hvaða kjör vjer hefðum fengið, ef vjer hefðum neitað að ganga að þessum samningum. Jeg vil leyfa mjer að minna á, hvernig Spánverjar tóku í strenginn þegar Norðmenn höfnuðu samningum við þá 1921. Þeir hækkuðu þá tolla á norskum fiski um 25%, Ef vjer nú neituðum samningum á líkan hátt, og Spánverjar hækkuðu tollinn á íslenskum fiski um 25%, þ. e. úr 24 pesetum í 30 peseta, þá mundi sú hækkun fara mjög fjærri þeirri ágiskun um 121/4 miljón króna skaða, sem meiri hluti viðskiftamálanefndar hjelt fram á síðasta þingi, jafnvel ekki ná 1/3 þeirrar upphæðar. Jeg tel því fráleitt að taka þessu spánska valdboði með þeirri auðmýkt og undirgefni að samþykkja þessa fortakslausu undanþágu, en miklu djarfmannlegra og hreinlegra að tímabinda undanþáguna og sýna fulla einurð gagnvart þessu útlenda ofríki.