01.03.1923
Neðri deild: 9. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í C-deild Alþingistíðinda. (2347)
31. mál, gjaldeyrislántaka
Flm. (Jakob Möller):
Þetta frv. er, eins og hv. deildarmenn sjá, borið fram af okkur hv. þm. Dala. (BJ). Svo sem jeg tók fram í umræðum um síðasta mál, er það í raun og veru til orðið í bankaráði Íslandsbanka, það er að segja, að þar bar jeg fram tillögu, er fór í þessa átt. Jeg skal ekkert um það segja hjer, hvort tillagan fann náð fyrir augum manna í bankaráðinu, því málið var þar óútrætt, en að minsta kosti fjelst hv. þm. Dala. (BJ) á hana, og því hefir hann borið fram þetta frv. í fjelagi við mig. Jeg get lýst yfir því, að bankastjórn Íslandsbanka á engan minsta þátt í þessu frv., og verður það því eingöngu að skrifast á syndareikning okkar hv. þm. Dala. (BJ).
Frv. þetta er að nokkru leyti svipaðs efnis sem þáltill. hv. samþm. míns, hv. 2. þm. Reykv. (JB). En sú tillaga er að því leyti ófullnægjandi, að hún gefur ekki ríkisstjórninni heimild til þess að veita neina fjárhagslega aðstoð til þess, er tillagan fer fram á, að koma lausu skuldunum fyrir sem föstum lánum. Hv. flm. till. (JB) taldi ósennilegt, að þetta gæti ekki tekist án slíkrar aðstoðar, eða eingöngu á ábyrgð bankanna. En jeg þykist geta fullyrt, að þetta megi ekki takast, nema með fjárhagslegri aðstoð ríkissjóðs. Þess vegna var það, að jeg bar fram þetta frv., enda þótt mjer væri kunnugt um tillögu hv. 2. þm. Reykv. (JB), sem fyrr kom fram.
Í raun og veru er í frv. ekki farið fram á annað en lýst var yfir hjer á þingi í fyrra að gera þyrfti. Það virtist þá vera eindreginn vilji samvn. viðskiftamálanna, að áður en gengi yrði opinberlega skráð, þyrfti að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir þá hættu, sem gengi krónunnar stafaði af áföllnum skuldum í íslenskum krónum, sem eru eign útlendinga. Hve miklu þessar skuldir nema, get jeg ekki fullyrt um. Samkvæmt rannsóknum viðskiftamála nefndar voru þær á síðastliðnu vori 6–8 miljónir. Síðan hefir eitthvað af þeim verið greitt, að öllum líkindum; þær hafa verið keyptar til þess að borga með þeim afurðir landsins, og af því stafar viðskiftakreppan. En þó að þessar skuldir nemi 6 miljónum, gerum við flm. frv. ekki ráð fyrir, að þær verði greiddar að fullu þegar í stað. Við ætlumst til, að ekki verði borgað meira en minst verður komist af með. Enda væri ekki auðvelt að koma því í kring, án þess að gengið hækkaði óeðlilega á skömmum tíma.
það er ekki tilætlun vor að taka lánið alt í einu, heldur tryggja sjer það til ákveðins árabils og nota það smám saman eftir þörfum. Það yrði þá einskonar varasjóður, er grípa mætti til á vandræðatímum, eins og t. d. síðastliðið haust. Þegar menn komast á snoðir um, að gjaldeyrisekla er í bönkunum, fara ýmsir menn á stúfana, sem hafa hagnað af lágu gengi, og reyna að lækka það. Það eru aðallega þeir menn, er kaupa íslenskar afurðir til útflutnings. þeir semja t. d. á vorin um kaup á fiski fyrir ákveðið verð. Síðan getur fiskurinn lækkað í verði á erlendum markaði, eins og varð síðastliðið sumar, og er þá beinlínis lífsspursmál fyrir þessa menn að geta felt krónuna í verði, að öðrum kosti tapa þeir stórfje á kaupunum.
En landsmenn mega ekki horfa á hag þessara manna, heldur verða þeir að tryggja sig gegn þessum tilraunum þeirra. En það er ekki unt meðan þessir menn hafa tök á því að lækka gengið, og það hafa þeir jafnan, meðan þeir geta fengið inneignir útlendinga hjer í bönkunum fyrir lægra verð en þeir eiga kost á hjer. Mjer er kunnugt um, að þegar kreppan byrjaði í haust, komu til bankanna tilmæli frá ýmsum mönnum um yfirfærslu á smáupphæðum. Jeg man t. d. eftir 2 beiðnum frá víxlurum í Kaupmannahöfn um sölu á 1000 sterlingspundum. Þeim fyrra var gerð úrlausn, hinum ekki, og var síðan mörgum neitað um erlendan gjaldeyri. Þá fór gengið að lækka í Kaupmannahöfn, og við það fengu braskararnir tækifæri til þess, að komast yfir íslenskar krónur við lægra verði en kostur var á hjer.
Þegar bankarnir stöðva yfirfærslur, er það af þeirri ástæðu, að lánstraust þeirra hrekkur ekki til þess að fullnægja eftirspurn eftir erlendum gjaldeyri. Það getur stundum verið fullhart á því, að lánstraust þeirra hrökkvi til að fullnægja þörfum landsmanna, hvað þá heldur slíkri — jafnvel tilbúinni — eftirspurn. En ef til væri sá varasjóður, sem í frv. er farið fram á, ætti, þegar svo ber undir, að grípa til hans og greiða þær lausu skuldir, sem þannig eru beinlínis boðnar fram, en ekki meir. Með því móti mætti jafna framboði og greiðslu þessara skulda á mörg ár. Eigendur þeirra myndu að jafnaði eigi svo ginkeyptir að losna við þær; sumir vildu geyma þær í þeirri von, að krónan hækkaði innan skamms upp í jafngengi, aðrir ætluðu að kaupa fyrir þær íslenskar afurðir, enn aðrir myndu geyma þær til þess að braska síðar með þær.
Til þess að festa gengið, þegar svona er ástatt, sje jeg enga eðlilegri leið en þá, sem hjer er farið fram á Hún er þvingunarlaus og fullkomlega rjettmæt, hvernig sem á er litið frá viðskiftalegu sjónarmiði. Engar hömlur eru lagðar á regluna um frjálst framboð og eftirspurn. Þetta myndi verka sjálfkrafa til þess að tryggja gengið gegn óeðlilegum og óheilbrigðum fjárprettum, yrði einungis til almenningsheilla, en ekki til þess að hlaupa undir bagga með einstökum stofnunum eða fjárbrallsmönnum.
Jeg hefi orðið þess var, að það hefir verið grýla í augum margra, að ríkið gengi í nýja ábyrgð fyrir Íslandsbanka. En til þess er ekki ætlast, að það verði fremur Íslandsbanki en Landsbankinn, sem yrði lántakandi, eins og frv. ber með sjer. Það gæti jafnvel orðið hvorugur bankinn; ríkissjóður gæti sjálfur tekið lánið í sambandi við hvorn bankann sem væri. Að vísu eru þessar skuldir mestmegnis innieign útlendinga í Íslandsbanka, en þó ekki eingöngu, heldur mun eitthvað af þeim vera í Landsbankanum. En þessar skuldir eru þannig vaxnar, að þær eru bönkunum sjálfum ekkert óþægilegar. Þeir þurfa ekki að svara þeim út í öðru en íslenskum krónum, greiða það eitt af þeim í erlendum gjaldeyri, sem þeim gott þykir. Þess vegna er hjer engan veginn að ræða um að gera neitt í þágu bankanna sjerstaklega. Íslandsbanka má einu gilda, hvort þetta verður gert eða ekki. Hagur hans breytist ekki; hann skuldar hið sama eftir sem áður.
Jeg hefi heyrt talað um aðra leið að þessu sama marki, og drap hv. 2. þm. Reykv. (JB) á hana, sem sje að taka allar útfluttar afurðir undir umsjón stjórnarvaldanna, svo að allur sá gjaldeyrir, sem til fellur fyrir útfluttar afurðir kæmi undir ráðstöfunarrjett ríkisstjórnarinnar, eða þeirrar stofnunar, er hún kynni að fela það starf, t. d. bankanna. Með þessu ætti að geta tekist að festa gengið, en það yrði þá á annan hátt, en í þessu frv. er lagt til. Gjaldeyririnn yrði trygður landsmönnum til árlegra afnota. En þessar erlendu innieignir yrðu með lagaboði útilokaðar frá því að verða greiddar, nema eftir geðþótta okkar. Þetta er mjög varhugavert, auk þess sem það orkar tvímælis að svifta menn, í þessu efni útflytjendur, umráðum yfir eignum sínum. Þá væri og vafamál, hvort heppilegra væri, að ríkið tæki að sjer algerða einkasölu afurðanna, eða trygði sjer einungis umráðarjett yfir gjaldeyrinum.
En nú verður að athuga, hver áhrif það mundi hafa, ef útlendingar fengju ekki inneignir sínar greiddar nema eftir geðþótta okkar. Það er augljóst, að Íslensk króna myndi þá falla í verði erlendis. Þegar menn sjá, að þeir fá ekki greitt fje sitt, munu þeir auðvitað bjóða innieignir sínar fyrir lægra verð. Við yrðum að sjálfsögðu ekki ver staddir fyrir því. Við hefðum umráð yfir öllum gjaldeyri fyrir útfluttar vörur, og það væri nægilegt til þess að fullnægja þörfum okkar. Gætum við þá látið okkur í ljettu rúmi liggja, hve mikils virði þessir útlendingar telja fjárkröfur sínar á oss. En hætt er við, að þetta yrði til þess að rýra lánstraust og álit landsins út á við, og er þess vegna mjög varhugavert, svo jeg taki ekki dýpra í árinni. En ef öllum öðrum tilraunum til að stöðva gengið verður illa tekið og lagst verður á móti þessum heilbrigðu ráðstöfunum, sem hjer er farið fram á í frv., mun jeg að vísu skoða huga minn um afstöðu mína til slíkra ráðstafana. Vænti jeg því, að hv. deild fari sjer ekki óðslega að fella þetta frv. að svo stöddu, heldur lofi því að ganga til nefndar, eins og líka sjálfsagt er um jafnmikilvægt mál, enda hefir það nú verið rætt í einar 5–6 klukkustundir, í sambandi við næsta mál á undan. Jeg skal fúslega játa, að ýmislegt í því þarf rannsóknar við. Þingið þarf að bera sig saman við bankana og leita álits þeirra um málið.
Jeg geri ráð fyrir, að verði þetta frv. felt, muni úr annari átt koma tillaga þess efnis, sem jeg drap á, sem sje um að ná tökum á andvirði útfluttra afurða til einkaumráða fyrir bankana. Fari svo, verð jeg að áskilja mjer frjálsar hendur um afstöðu mína til þeirra tillagna.