12.03.1923
Neðri deild: 18. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í C-deild Alþingistíðinda. (2388)
56. mál, sveitarstjórnarlög
Flm. (Sigurður Stefánsson):
Frv. þetta hefi jeg flutt eftir tilmælum hreppsnefndar Hólshrepps, og er að nokkru leyti gerð grein fyrir ástæðum þess í greinargerð frv. Þó skal jeg nú fara nokkuð nánar út í þær, og útlista fyrir háttv. deild, hvað það er, sem frv. þetta á aðallega að ráða bót á.
Sú hefir orðið reyndin á, sjerstaklega nú síðustu árin, að illkleift hefir verið að ná inn aukaútsvörum á rjettum gjalddaga í mörgum hreppum við sjávarsíðuna. Er þetta mikið vegna þess, að gjalddaginn er um hávetur (31. des.), en um það leyti árs mun gjaldþol þeirra manna við sjávarsíðuna, er fiskiveiðar stunda, einna minst. Þá fiskast minst, og yfirleitt standa þeir menn þá verst að vígi með að greiða slík gjöld. Raunin hefir líka orðið sú, að mestur hluti aukaútsvarsins hefir verið ógreiddur við lok reikningsársins (í fardögum). Það virðist því töluverð ástæða til að breyta reikningsárinu á þann hátt, sem farið er fram á í frumvarpinu. Annað atriðið í þessu frv. lýtur að niðurjöfnuninni, að hún fari fram að vorinu. Eins og menn vita, er fátækraframfærið vanalega stærsti gjaldliðurinn í reikningum hreppanna. Í fjölmennum sjávarþorpum er síðari hluti vetrarins mjög oft sá tími, er fátæklingar leita fátækrastyrks, 40 og verður það til þess að fátækraframfærið verður miklu hærra en hreppsnefndunum gæti komið til hugar að áætla það að haustinu. Ef jafnað er niður að vorinu, þá verður miklu betur um það vitað, hversu hár þessi útgjaldaliður er, heldur en ef jafnað er niður að haustinu. Auk þess má benda á það, að ef jafnað er niður að vorinu, getur hreppsnefndin haft til leiðbeiningar skattskrá hreppsins frá árinu á undan, sem þá verður fullgerð og framlögð, og er það allmikið hagræði fyrir nefndina, þar sem þar eru áreiðanlegar heimildir um gjaldþol útsvarsgreiðenda.
Þetta eru þá ástæðurnar fyrir frv. Þótt jeg verði að játa, að það kunni að valda óþægindum, að hafa eitt reikningsár í einum hrepp og annað í öðrum, þá lít jeg svo á, að þetta, sem jeg hefi nú getið um, verði þyngra á metunum. Hjer er aðeins um heimildarlög að ræða. Vænti jeg þess, að háttv. þm. verði mjer samdóma um þetta og hleypi þessu frv. til 2. umr.