13.03.1923
Neðri deild: 19. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í B-deild Alþingistíðinda. (240)
12. mál, aðflutningsbann á áfengi
Jakob Möller:
Mjer þykir dálítið kátlegt, að menn skuli þurfa að rökræða, hvort þörf hafi verið á að hafa svo víðtæka áfengisverslun, sem gert hefir verið. Jeg skal ekki áfellast hæstv. stjórn fyrir það. En mjer skilst á ummælum hæstv. forsrh. (SE), að stjórnin hafi ekki rannsakað sem skyldi, hvað gera þyrfti.
Hæstv. forsætisráðherra segir, að hann hafi sett reglugerðina í samráði við trúnaðarmenn sína í Kaupmannahöfn. Jeg skil ekki. hvað málið hefir grætt á því að sigla; hæstv. forsrh. (SE) hefði eins getað sett reglugerðina í samráði við trúnaðarmenn sína hjer heima. En það, sem gera átti, var að komast eftir, hvað Spánverjar heimtuðu, og hefði mátt gera það í sambandi við samningana. Þá hefði átt að skýra Spánverjum frá, hvernig áfengislöggjöf vorri hafi verið hagað áður en bannlögin voru sett, og hefðu þeir þá sennilega fallist á, að sama fyrirkomulag yrði haft framvegis. Jeg skil ekki, að Spánverjar hefðu mælt í móti því. Það var aðeins þetta formlega bann, sem þeir ömuðust við. Vínlöndin hafa aldrei reynt að beita ofbeldi aðrar þjóðir, þó að þær gerðu strangar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir misnotkun áfengis. Þó að löggjöf vor væri orðin mjög ströng áður en bannið komst á, heyrðust engin mótmæli úr þeirri átt.
Jeg álít því, að óþarft hafi verið að setja upp vínsölustaði að svo stöddu. Það hefði mátt haga til eins og áður, að það væri komið undir vilja og samþyktum hjeraðsstjórna. Lengra hefði ekki þurft að ganga. Jeg skal ekki bera brigður á, að hæstv. forsrh. (SE) sje sannfærður um, að skoðun sín sje rjett. En hann hefir ekki leitt rök að því, að hún sje rjettari heldur en sú skoðun, sem jeg er sannfærður um. Annars finst mjer umræður um þetta atriði eiga betur heima við 3. umr., ef annars á ræða það í sambandi við þetta frumvarp.
Jeg skal þó stuttlega gera grein fyrir afstöðu minni til frv. Afstaða mín er nokkuð sjerstæð. Jeg lít ekki á málið frá bannsjónarmiði aðallega, heldur kveinka jeg mjer sjerstaklega við að samþykkja frv. vegna þess, hve nærri er gengið sjálfsákvörðunarrjetti vorum, eins og jeg lýsti á síðasta þingi. Hins vegar hefi jeg sannfærst um, að um svo mikinn fjárhagsvoða geti verið að ræða, að ekki sje annað fært en að láta undan, þó að sárt sje. Og þegar engar breytingar hafa orðið í þessu efni síðan í fyrra. sje jeg auðvitað ekki annað en að samþykkja verði þetta frv. Hvort það er gert um óákveðinn tíma, svo sem í frv. er gert ráð fyrir, eða um ákveðið árabil, eins og sumir vilja, skiftir ekki máli. Þó að lögin eigi að gilda um óákveðinn tíma, má altaf nema þau úr gildi, þegar vjer þykjumst færir um að taka afleiðingunum af samningsslitum við Spánverja. Hingað til höfum vjer orðið að láta undan, og enn verðum vjer að gera það, samkvæmt skýrslu Pjeturs Ólafssonar, hvað sem síðar kann að verða. Þar sem því ekkert nýtt er fram komið í málinu, mun jeg greiða atkvæði með frv., eins og á síðasta þingi.