24.04.1923
Efri deild: 47. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í C-deild Alþingistíðinda. (2400)

137. mál, byggingarnefnd landsins

Jónas Jónsson:

Jeg get verið stuttorður og vísað til fyrri ræðu minnar um þetta mál. Þó hefir hún ekki megnað að skýra málið fyrir hv. 2. þm. S.-M. (SHK). Jeg verð að segja, að mjer finst málsmeðferð hv. allshn. dálítið einkennileg, að hún skuli vísa þessu frv. frá sjer, af því að fyrir hv. Nd. liggi till., sem á sínum tíma gæti verið tekin til meðferðar ásamt með frv. Nú getur enginn sjeð fyrir örlög þessarar till. í Nd., ekki einusinni hin djúpvitra allshn. Það gæti vel verið, að málið dagaði þar uppi, eða að till. yrði feld, svo að málið kæmi aldrei til Ed. Með öðrum orðum, það er alveg óvist, að frv. fengi nokkru sinni að líta dagsljósið meir, ef það ætti að bíða eftir þessari till.

Viðvíkjandi aðalatriðinu, þá er rjett að taka það fram, að landsstjórnin sótti um leyfi til að fá að breyta vörugeymsluhúsi, svo að hægt væri að geyma þar vínbirgðir. Þetta geymsluhús er einstakt mjög, með stór tún á tvær hliðar, en sjóinn á þá þriðju. Þessari beiðni landsstjórnarinnar var neitað af byggingarnefndinni, sem taldi, að af því myndi stafa svo mikil brunahætta. Það var lítill meiri hluti, sem var með synjun, og litlu áður hafði bæjarstjórn Reykjavíkur gefið sitt samþykki. En hvað þýddi þessi neitun? Landið verður að borga tugi þúsunda í húsaleigu af því, að um leyfi var synjað. Ef till. hv. allshn. nær fram að ganga, og frv. yrði felt, þá væri útilokað, að landið gæti sparað nokkur næstu ár á þessum lið.

Það er skiljanlegt um ýmsa menn, jafnvel suma hjer í deildinni, að þeir sjeu á móti frv. þeir bíða nokkurt tjón af þessu, t. d. þeir, sem leigja landinu geymslu fyrir vin. Jeg ætla samt að treysta því, að þeir menn hjer, sem hafa slíkra hagsmuna að gæta, láti ekki þá aðstöðu hafa áhrif á meðferð málsins.