24.04.1923
Efri deild: 47. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í C-deild Alþingistíðinda. (2402)

137. mál, byggingarnefnd landsins

Jónas Jónsson:

Það, að landsstjórnin hefir ekki notað þann rjett sinn, er hv. 4. landsk. (JM) talaði um, og eigi einu sinni talað við húsameistara ríkisins þar að lútandi, ætti að vera nægileg ástæða til þess, að þingið, sem ekki lætur margt „pósitivt“ eftir sig liggja, að dómi flestra, samþykti frv. þetta, sem gæti sparað ríkissjóði tugi þúsunda árlega. Jeg get ekki fallið frá þessu frv., úr því að sú landsstjórn, sem nú situr og mun líklega sitja til næsta árs, sýnir engan dug í máli þessu. Hið eina, sem gæti fengið mig til að taka aftur þetta frv., væri, að hv. 4. landsk. þm. (JM) myndaði stjórn. Þá myndi hann ráða þessu máli farsællega til lykta, eftir því sem hann segir.

Þessi hv. þm. (JM) stökk mjög upp á nef sjer út af ummælum mínum um húsaleiguna. En hann verður að sætta sig við, að menn eru alment dæmdir eftir því sem þeir breyta. Hann stóð fremstur í flokki þeirra, sem eyðilögðu lögin um takmörkun á húsaleiguokrinu, lög sem voru óhjákvæmileg öllum almenningi, en sköðuðu engan, nema nokkra húseigendur. Það mun enginn trúa öðru, en að það hafi verið hagsmunir þessara húseigenda, sem urðu því frv. að bana, og er ekki til neins að setja upp sakleysissvip, þegar svo einskær stjettareigingirni er jafnaugljós. Mun þeim, sem drápu það frv., erfitt að sanna almenningi, að þar hafi ráðið hæsta tegund af föðurlandsást.